Sýnir færslur með efnisorðinu mál. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu mál. Sýna allar færslur

20101011

Sandhólar – varúð ónómótólógía!

Ónómótólógía hefur aldrei verið mín sterkasta hlið og ég er nú bara hálffeginn því, mér hefur alltaf fundist eitthvað analt við það að stúdera staðarnöfn.

Hingað til hef ég til dæmis verið með það á hreinu að -ey í staðarnafninu Málmey vísi til þess að Málmey var byggð á eyju í upphafi. Þegar mamma spurði mig í síðustu viku er við gengum um götur Málmeyjar fullyrti ég að svo væri, en byrjaði strax að efast ... Ég hafði líka rangt fyrir mér! Sænska wikipedia skrifar [í lauslegri þýðingu]:

Málmey er nefnd í heimildum allt frá því u.þ.b. 1170 sem Malmöghae, Malmhaugar, Malmöghe. Fyrriliðurinn kemur af malm = sandur og síðariliðurinn af höie = haugar.

Málmey ætti því eiginlega að heita Sandhólar á íslensku og er það nú ekki mjög tignarlegt.

20100124

Talið!

Systir mín (sú eldri) og ég ræddum tómstundaiðju Gústafs V Svíakonungs í símann á afmælisdegi hennar. Hún kvartaði sáran undan því að ég blogga of lítið. Hún bloggar bara um lélegt málfar, ég um gardínur. Það er ekki svo oft sett upp nýjar gardínur hérna heima að það sé í frásögur færandi. Mér sýnist samt á öllu að íslenskir blaðamenn mættu alveg vanda mál sitt betur. Þá á ég ekkert endilega við þágufallssýki, nefnifallsheilkenni, nýjar og gamlar þolmyndir, dvalarhorf og þess háttar. Það fer ekki í taugarnar á mér nema síður sé (þótt ég átti mig ekki alveg á því hvað þetta nýja dvalarhorf á að merkja, en það er annar handleggur).

Hér er smá dæmi. Ef ég væri ritstjóri DV hefði ég tekið þann sem skrifaði textann á beinið (ég á samt erftitt með að trúa því að textinn sé frumsaminn ... hvað sem því líður þá er hann arfaslæmur. Ég á hvorttveggja við innihald og málfar).

Nema hvað! Einhvern tíma fyrir fyrri heimstyrjöld fékk Gústav V magasár og læknir hans ráðlagði honum að sauma út til að róa taugarnar. Hann saumaði víst aðallega það sem kallast blixtsöm eða viggsöm á sænsku (ég hef ekki hugmynd um hvað það heitir á íslensku, en systir mín sem er ótæmandi fróðleikstunna þegar kemur að handavinnu veit það áreiðanlega). Hér er mynd:

Sagan segir að þýskættuð kona Gústavs, Viktoría, hafi nauðað í honum um að gerast bandamaður Þjóðverja í fyrri heimstyrjöldinni þar sem hann sat boginn yfir útsaumsstykkinu. Gústaf svaraði víst með ákveðinni röddu: „hjóð Viktoría, ég er að telja“. Svíþjóð hélt hlutleysi sínu, en Viktoría fór til San Michele og daðraði við Munthe.

20091117

Kvikindi

Ég nýt þess að geta bent konunni minni á að enska sé tungumál með sagnasamræmi.

20091009

Víla

„É vílar det ekki!“ segir R þegar henni líkar ekki eitthvað.


(Víla = gilla = líka)

Afmælissöngurinn er í miklu uppáhaldi þessa dagana, svona þegar hún syngur ekki Frerö Sjankö (Meistari Jakob) sem frönskumælandi bróðir hennar kenndi henni. Hann kemur svona út (þ.e. afmælissöngurinn, Frerö Sjankö er nánast fullkominn, enda bróðir hennar með fullkomnunaráráttu):

Hún e amlan í dag! (da capo ad lib)

20091004

Donkutúr

Það er bráðnauðsynlegt að vera með sólgleraugu þegar maður fer út í donkutúr. Sérstaklega þegar maður fer út í hvassviðrið eftir að sólin er sest.


20091003

Málfar

Þegar R ætlar að segja eitthvað merkilegt byrjar hún á því að segja vet du vad (veistu hvað). Herregud og typiskt bættust við í frasasafnið í gær. Þegar maður hrópar á hana og hún er upptekin, segir hún Jag håller på!


Oftast nær koma setningarnar fyrst á sænsku (með þykkum skánskum hreim). Stundum hermi ég eftir henni og spyr svo hvað hún hafi sagt. Þá endurtekur hún það á íslensku, eða því sem hún heldur að sé íslenska.

Við fórum í bæinn í dag í rigningunni (hún átti að sofa í kerrunni, en það fór náttúrlega öðruvísi en planað ... hún fékk nammi í staðinn, í öskju með mynd af apa á). Þá sagði hún: Där är apan (á skánsku verður það einhvern veginn dier ier oapan) og ég hermdi eftir henni og spurði svo hvað það væri á íslensku, jú her er úpin. Þegar hún man ekki íslenska orðið breytir hún bara sérhljóðunum aðeins.

20090914

Bjartsýni

„Við komum snart!“ hrópaði R á eftir ömmu þegar hún fór inn í öryggisleitina á Kastrup og þótt lestin tilbaka hafi verið stappfull var heldur einmanalegt hjá okkur. Þá var gott að koma heim í eplakompottið sem amma gerði í morgun úr eplunum í garðinum.


Guð blessi Ísland.

20090902

Festis

Á hverjum degi kaupum við perusafa (festis) á torginu og R drekkur hann svo í hjólavagninum á leiðinni heim.


Þegar hún fékk safann í gær sagði hún: „Pabbi er snäll“ og hjartað í mér bráðnaði.

Guð blessi Ísland.