Sýnir færslur með efnisorðinu árstíðir. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu árstíðir. Sýna allar færslur

20110404

Sumar

Ef maður á að trúa sænsku veðurstofunni, þá er komið sumar. Meðalhitinn fór nefnilega ekki niðurfyrir 10°C síðasta dægrið. Það er gott.

Konan spurði mig í gær hvort ég ætlaði ekkert að sá sumarblómum og ég fékk kvíðakast og byrjaði samstundis að svitna af angist og hljóp út til að þrífa bílinn. Ég vil alveg hafa garðinn fullan af blómum, en ég hef ekki þolinmæði í mér til þess að standa í sáningum. Svo grunar mig að allt drepist úr þurrki ef manni skyldi detta í hug að bregða sér af bæ í nokkra daga. Og það er nú bara þannig að ég hef jafnmiklar áhyggjur af blómunum mínum og börnunum mínum ... og það er varla á það bætandi.

Ætli maður kaupi ekki bara eitthvert ódýrt rusl sem drepst á einum mánuði og láti þar við standa.

Bíllinn er allavega hreinn utan sem innan.

20110327

Sunnudagur á sumartíma

Það var haldið upp á 8 ára afmæli í gær. Við tókum okkur saman foreldrar þriggja barna í bekknum og héldum stórveislu. Það var vellukkað þótt enginn hafi komið í sparifötunum. Það er sérstök lykt af þrjátíu börnum sem eru búin að úða í sig sælgæti og kökum og hlaupa viðstöðulaust í tvo klukkutíma. Tryllingsglampinn í augunum er rosalegur.

Við misstum svo klukkutímann sem við fengum í haust í nótt; það er kominn sumartími.

Mér leiðist þetta eilífa tímaflakk, en það er einn kostur við það að seinka klukkunni á vorin, nefnilega sá að klukkan er meira þegar sólin sest.

Dagurinn fór annars í snatterí. Fótboltaæfing, barnaafmæli nr. 2 þessa helgi (næstu helgi eru þau líka tvö), matarinnkaup fyrir vikuna. Ég var svo búinn á því þegar ég kom heim að ég lagðist upp í rúm og sofnaði. Ég HATA matvöruverslanir.

20100519

Sumar

Eftir langt kuldakast kom loksins sumarveður í gær og vonandi helst það eitthvað. Mann er virkilega farið að lengja eftir hlýindum.


Garðurinn dafnar þrátt fyrir kulda og regn síðustu vikur. Við fengum lánað handsláttuvélina nágrannans í gær og T sló grasið í fyrsta sinn. Það tók ekki langan tíma.

Ég get varla beðið eftir því að morgunfrúrnar byrji að blómstra. Ég sé allavega ekki eftir að hafa hent þeim út svona snemma. Þær eru þéttar og stinnar í stilknum.

Rósmarín og salvía hlið við hlið í leirpotti.

R felur sig á bak við sýrenu. Klifurrósin lifði það af að ég klippti hana í mars.

20100429

Gardínublogg verður garðyrkjublogg

Aldeilis munur að geta sprangað um í netabolnum og speedo-skýlunni án þess að krókna úr kulda alla tíð!

[...]

Við T sáðum sólblómafræjum í byrjun apríl og þau spretta eins og illgresi. Þetta urðu u.þ.b. þrjátíu plöntur. Ég henti öllum nema tólf. Þau verða náttúrlega svo stór, sólblómin og garðurinn er svo lítill að það er ekki pláss fyrir meira.

Við keyptum svo stunguspaða og mold um daginn og í gær gróf ég loksins fyrir beði úti undir húsvegg. Ég fékk aðsvif þegar ég stakk spaðanum í gegn um grasþökuna og lenti á hálfgerðum sementsalla úr sandi og möl ... ekki nema von að aumingjans grasið sé með blettaskalla!

Sólblómin dafna nú í beðinu. Hér er mynd (kústurinn í horninu er Lavandula augustifolia):



(Mig hefur alltaf dreymt um að skrifa svona garðyrkju-/innanhússhönnunarblogg. Hér er önnur mynd sem sýnir hversu natinn ég er við uppstillingarnar):




Myndin sýnir klifurrósina (og eitthvert illgresi sem ég kann ekki deili á undir), morgunfrúrnar í zinkbalanum (mjög fansí) og rósmarínið mitt og salvíuna! Þetta er svo fallegt að ég tárast!

Draumar mínir rætast einn af öðrum.

20100318

Vetrargosi

Þá veit maður að vorið er komið þegar maður sér fyrsta vetrargosann stinga upp stránum. Hann og hóffífilinn sem er reyndar öllu ljótari.




Það er þoka. Vorþoka.

20100228

Ítalskt sætabrauð

Maður slær ekki slöku við! Það er örugglega rétt sem kom fram í þáttum Christine Koht um fjölskylduna að barnafólk vill helst af öllu ekki fá á tilfinninguna að það hafi ekki neitt að gera, því þá sofnar það. Maður rembist eins og rjúpan við staurinn allan liðlangan daginn. Þá þarf maður heldur ekki að hugsa um allt þetta óþægilega í lífinu ...


Ég bakaði sænskar kardimommutvíbökur í gær. Ég bakaði ítalskar möndlutvíbökur (cantucci) í dag:


Úti er vor! Febrúarvor! VOR!!!

20091201

Gulltré

Við erum flutt. Eina ferðina enn. Að þessu sinni innanbæjar í ysta úthverfi. Hinum megin við hraðbrautina eru akrar og ég læt mig dreyma um svínaskítsfýluna sem á eftir að gjósa upp hér með vorinu. Ef eitthvað vekur mann betur en rotþróarstækja, þá er það lyktin af nýskítadreifðum túnum.


Það er kaldara hér en niðri í bæ. Jólatréð (eitt af tveim) er komið upp.

20090922

Lagst í kör

Síðustu vikur höfum við hjónin legið hálförend í flensu. Ef þetta var eitthvað annað en svínainflúensan þá hlakka ég sko ekki til að fá hana. Börnin voru veik hálfa vikuna á undan og við pössuðum okkur svo á því að vera rúmliggjandi á meðan amma Íslam var í heimsókn. Þegar hún fór lognaðist ég út af og lá í móki í nokkra daga. Dagarnir á eftir hafa svo liðið í móðu og óbærilegum hausverk. Mér leið eins og hauskúpan væri við það að klofna í tvennt.

Hausverkurinn er sem betur fer horfinn en haustið kom í staðinn. Ef haust skyldi kalla, maður myndi kannski ekki kalla það haust alls staðar ef hitinn fer niður í 15 gráður ... En trén eru byrjuð að gulna og bergflétturnar á húsunum eru orðnar eldrauðar. Það er líka haust.

Ég er að fara af límingunum út af þrenglsum. Æ, hvað lífið er mikill barningur! Og ekki skánar það við það að verða eldri.

Guð blessi Ísland.