20100519

Sumar

Eftir langt kuldakast kom loksins sumarveður í gær og vonandi helst það eitthvað. Mann er virkilega farið að lengja eftir hlýindum.


Garðurinn dafnar þrátt fyrir kulda og regn síðustu vikur. Við fengum lánað handsláttuvélina nágrannans í gær og T sló grasið í fyrsta sinn. Það tók ekki langan tíma.

Ég get varla beðið eftir því að morgunfrúrnar byrji að blómstra. Ég sé allavega ekki eftir að hafa hent þeim út svona snemma. Þær eru þéttar og stinnar í stilknum.

Rósmarín og salvía hlið við hlið í leirpotti.

R felur sig á bak við sýrenu. Klifurrósin lifði það af að ég klippti hana í mars.

3 aths:

baun

Þetta er myndarlegt! Vildi að ég gæti býttað á kryddplöntum við þig, mig vantar rósmarín.

Nafnlaus

Æji hvað þetta er skemmtilegt :) Og gaman að fá að fylgjast með :)
g

María

Myndarskapur er þetta. Þú ættir að drífa þig í landslagsarkitektar- og garðyrkjunám.