20100624

Útsprungin

Hrútspunginn? Nei, úsprungin. Rósin er útsprungin! Á Jónsmessu.


Sólblómin eiga nú hug minn allan og ég eyði öllum kvöldum í það að binda þau upp upp á nýtt svo þræðirnir skerist ekki í blöðin og stilkana. Konan kvartar sáran yfir því að það séu aldrei teknar myndir af henni. Hún þarf að lauma sér inn á þær í staðinn.

Stímað

Stímaður silfurþráður (tvöfaldur)


20100622

Miðsumarmorgunn

Sólblóm og bergsóley. Nágrannarnir (hinum megin við skjólvegginn) eru líka með bergsóley sem blómstaði í síðustu viku, blómin eru risastór og fjólublá og þekja næstum því allan vegginn. Mín á að blómstra rauðum blómum.



Hvítu þræðirnir eru húsgarn sem ég batt sólblómin upp með þegar ég kom heim úr ferðalagi um daginn. Konan hafði glápt á það aðgerðalaus þegar blómin brotnuðu næstum því í slagveðursrigningu.

Klifurrósarknúppar. Ég fæ gæsahúð af tilhugsuninni um að þetta eigi eftir að opna sig einhvern tíma. Ég vona bara svo innilega að það gerist á Jónsmessu. Það væri svo fallegt.


Blómstrandi morgunfrú. Þessi er hálfræfilsleg greyið. Ég bjóst við risastórum blómum og að hún væri aðeins lágvaxnari, svona eins og morgunfrúrnar sem mamma var með í garðinum fyrir norðan í den. Þessar ná mér upp á hné og blómin eru varla stærri en fingurbjörg ...

20100604

Hiti

Síðustu dagar hafa verið erfiðir. Ég hef næstum því ekki getað gengið og nú er komið í ljós að ég þarf að fara í uppskurð. Þegar ég var táningur hafnaði stýrið á hjólinu mínu á kafi í klofinu á mér og það hefur hvað eftir annað byrjað að gera mér lífið leitt. Það verður þá guðsblessunarlega meira pláss í brókunum.

Er ekki dásamlegt að geta setið úti langt fram á kvöld, spjallað, hlegið, drukkið? Sumarið léttir lundina, og vermir sálina. Mig svíður í kinnarnar.