
Þá hefur maður fengið að kynnast sænska heilbrigðiskerfinu og eins gott að krakkinn var kominn með kennitölu... Hún hljóp sem fætur toguðu inn í svefnherbergi, datt fram fyrir sig og fékk rúmbríkina svo kyrfilega í barkakílið að hún missti andann í tuttugu sekúndur og meðvitundina í einhverjar í viðbót. Það var hringt á sjúkrabíl í offorsi og áður en við vissum af því var íbúðin full af sjúkraliðum.
Hún var eiturhress þegar hún rankaði loksins við sér og það kjaftaði af henni hver tuska við karlana sem fengu allir að kynnast dúkku og íhníohní og svo átti pabbi að tala skánsku svo allir gætu hlegið smá...
Við fórum svo feðginin á slysó þar sem leikritið hélt áfram ... Hér er sérstök slysavarðsstofa fyrir börn þótt það þýði ekki að biðtíminn sé eitthvað styttri. Við vorum hvort um sig orðin heldur framlág þegar við fengum loksins að hitta lækni eftir rúma tveggja tíma bið.
Það heyrðist ekki múkk í henni þegar smásjánni var troðið ofan í hálsinn á henni gegn um nefið.
T var heldur svekktur yfir því að hún skyldi ekki hafa fengið neitt fyrir að hafa staðið sig svona vel. Ekki einu sinni límmiða...
Guð blessi Ísland.