Að týna heilanum
Fyrir tæpum tíu árum gekk ég út úr strætó á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn og skildi allan farangurinn minn eftir í vagninum. Eftir að fá töskurnar aftur eftir nokkra klukkutíma lofaði ég sjálfum mér að ég myndi aldrei týna neinu verðmætu á almannafæri.
Ég fór til Þýskalands um miðjan síðasta mánuð að halda fyrirlestur. Ég fór eldsnemma á fimmtudagsmorgni og kom heim seint á föstudagskvöldi, seinna en ég hafði ætlað mér reyndar. Því þegar ég stóð á Kastrup og ætlaði að kaupa LEGO handa krökkunum fann ég hvergi peningaveskið ... ég fékk móðursýkiskast eins og mér einum er lagið. Stóð þarna peningalaus og vissi ekki hvernig í ósköpunum ég ætti eiginlega að koma mér heim yfir sundið. Í rælni hafði mér samt tekist að troða sænskum hundraðkrónu seðli í úlpuvasann áður en ég fór að heiman, svona ef eitthvað skyldi gerast og ég fór með hann í miðasölu DSB jafnvel þótt ég vissi fullvel að miðinn kostar 135 krónur ... Þar var enga hjálp að fá svo ég laumaði mér um borð í lestina og hoppaði svo út á fyrstu stöð hinum megin við brúna, rétt áður en maðurinn sem skoðar miðana kom inn í vagninn þar sem ég stóð. Ég notaði svo hundraðkarlinn minn til þess að kaupa mér miða heim (42 krónur) og beið eftir næstu lest.
Svo fékk ég bréf í dag frá sænska sendiráðinu í Berlín. Peningaveskið fundið og mér boðið að senda það heim fyrir fimm evrur ...

1 aths:
Gott að allt endaði vel :)
g
ATHS.