20100228

Ítalskt sætabrauð

Maður slær ekki slöku við! Það er örugglega rétt sem kom fram í þáttum Christine Koht um fjölskylduna að barnafólk vill helst af öllu ekki fá á tilfinninguna að það hafi ekki neitt að gera, því þá sofnar það. Maður rembist eins og rjúpan við staurinn allan liðlangan daginn. Þá þarf maður heldur ekki að hugsa um allt þetta óþægilega í lífinu ...


Ég bakaði sænskar kardimommutvíbökur í gær. Ég bakaði ítalskar möndlutvíbökur (cantucci) í dag:


Úti er vor! Febrúarvor! VOR!!!

3 aths:

Nafnlaus

Vá, húslegur að vanda. Hefði verið til í smakka cantucci ... ef þú hefðir ekki hálfvitast til að flytja til útlanda. Hefðir þú t.d. átt heima hér væri ég búin að passa börnin fyrir þig nokkrum sinnum það sem af er ársins og ég hefði auðvitað hreinsað úr þeim æðiberin, smakkað bakkelsið og skjallað þig og slegið þér gullhamra svo það hálfa væri yfirdrifið fyrir stórkostlega myndlistarhæfileika og svo hefðum við viðrað þetta óþægilega í lífinu þangað til það blakti hvítt og hreint á snúru undir esjunni - og svo myndum við semja limrur á eftir og jóðlað upp í vindinn. Stóra

Hrólfur S.

En girnilegt! Hvaða uppskriftir styðst þú við?

krummi

Cantucciuppskriftin er hér:

http://brallibauk.blogspot.com/2010/02/cantucci-di-giorgia.html

Sænska uppskriftin er fjölskylduleyndarmál.