Sýnir færslur með efnisorðinu slúður. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu slúður. Sýna allar færslur

20100124

Talið!

Systir mín (sú eldri) og ég ræddum tómstundaiðju Gústafs V Svíakonungs í símann á afmælisdegi hennar. Hún kvartaði sáran undan því að ég blogga of lítið. Hún bloggar bara um lélegt málfar, ég um gardínur. Það er ekki svo oft sett upp nýjar gardínur hérna heima að það sé í frásögur færandi. Mér sýnist samt á öllu að íslenskir blaðamenn mættu alveg vanda mál sitt betur. Þá á ég ekkert endilega við þágufallssýki, nefnifallsheilkenni, nýjar og gamlar þolmyndir, dvalarhorf og þess háttar. Það fer ekki í taugarnar á mér nema síður sé (þótt ég átti mig ekki alveg á því hvað þetta nýja dvalarhorf á að merkja, en það er annar handleggur).

Hér er smá dæmi. Ef ég væri ritstjóri DV hefði ég tekið þann sem skrifaði textann á beinið (ég á samt erftitt með að trúa því að textinn sé frumsaminn ... hvað sem því líður þá er hann arfaslæmur. Ég á hvorttveggja við innihald og málfar).

Nema hvað! Einhvern tíma fyrir fyrri heimstyrjöld fékk Gústav V magasár og læknir hans ráðlagði honum að sauma út til að róa taugarnar. Hann saumaði víst aðallega það sem kallast blixtsöm eða viggsöm á sænsku (ég hef ekki hugmynd um hvað það heitir á íslensku, en systir mín sem er ótæmandi fróðleikstunna þegar kemur að handavinnu veit það áreiðanlega). Hér er mynd:

Sagan segir að þýskættuð kona Gústavs, Viktoría, hafi nauðað í honum um að gerast bandamaður Þjóðverja í fyrri heimstyrjöldinni þar sem hann sat boginn yfir útsaumsstykkinu. Gústaf svaraði víst með ákveðinni röddu: „hjóð Viktoría, ég er að telja“. Svíþjóð hélt hlutleysi sínu, en Viktoría fór til San Michele og daðraði við Munthe.