Sýnir færslur með efnisorðinu sænskt. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu sænskt. Sýna allar færslur

20101011

Sandhólar – varúð ónómótólógía!

Ónómótólógía hefur aldrei verið mín sterkasta hlið og ég er nú bara hálffeginn því, mér hefur alltaf fundist eitthvað analt við það að stúdera staðarnöfn.

Hingað til hef ég til dæmis verið með það á hreinu að -ey í staðarnafninu Málmey vísi til þess að Málmey var byggð á eyju í upphafi. Þegar mamma spurði mig í síðustu viku er við gengum um götur Málmeyjar fullyrti ég að svo væri, en byrjaði strax að efast ... Ég hafði líka rangt fyrir mér! Sænska wikipedia skrifar [í lauslegri þýðingu]:

Málmey er nefnd í heimildum allt frá því u.þ.b. 1170 sem Malmöghae, Malmhaugar, Malmöghe. Fyrriliðurinn kemur af malm = sandur og síðariliðurinn af höie = haugar.

Málmey ætti því eiginlega að heita Sandhólar á íslensku og er það nú ekki mjög tignarlegt.

20100318

Vetrargosi

Þá veit maður að vorið er komið þegar maður sér fyrsta vetrargosann stinga upp stránum. Hann og hóffífilinn sem er reyndar öllu ljótari.




Það er þoka. Vorþoka.

20100306

Á göngu

20100207

Tvíbökur

20100206

Á kaffihúsinu (fika)

Á bókasafninu

20100124

Talið!

Systir mín (sú eldri) og ég ræddum tómstundaiðju Gústafs V Svíakonungs í símann á afmælisdegi hennar. Hún kvartaði sáran undan því að ég blogga of lítið. Hún bloggar bara um lélegt málfar, ég um gardínur. Það er ekki svo oft sett upp nýjar gardínur hérna heima að það sé í frásögur færandi. Mér sýnist samt á öllu að íslenskir blaðamenn mættu alveg vanda mál sitt betur. Þá á ég ekkert endilega við þágufallssýki, nefnifallsheilkenni, nýjar og gamlar þolmyndir, dvalarhorf og þess háttar. Það fer ekki í taugarnar á mér nema síður sé (þótt ég átti mig ekki alveg á því hvað þetta nýja dvalarhorf á að merkja, en það er annar handleggur).

Hér er smá dæmi. Ef ég væri ritstjóri DV hefði ég tekið þann sem skrifaði textann á beinið (ég á samt erftitt með að trúa því að textinn sé frumsaminn ... hvað sem því líður þá er hann arfaslæmur. Ég á hvorttveggja við innihald og málfar).

Nema hvað! Einhvern tíma fyrir fyrri heimstyrjöld fékk Gústav V magasár og læknir hans ráðlagði honum að sauma út til að róa taugarnar. Hann saumaði víst aðallega það sem kallast blixtsöm eða viggsöm á sænsku (ég hef ekki hugmynd um hvað það heitir á íslensku, en systir mín sem er ótæmandi fróðleikstunna þegar kemur að handavinnu veit það áreiðanlega). Hér er mynd:

Sagan segir að þýskættuð kona Gústavs, Viktoría, hafi nauðað í honum um að gerast bandamaður Þjóðverja í fyrri heimstyrjöldinni þar sem hann sat boginn yfir útsaumsstykkinu. Gústaf svaraði víst með ákveðinni röddu: „hjóð Viktoría, ég er að telja“. Svíþjóð hélt hlutleysi sínu, en Viktoría fór til San Michele og daðraði við Munthe.

20091211

Húsgögn og hádegismatur

Það var keypt sér rauðar bókahillur í IKEA og ljós yfir borðstofuborðið (fyrri eigendur höfðu skilið eftir forljóta plastljósakrónu í líki minimalístísks blóms). Nú vantar bara gardínurnar og maður getur farið að spankúlera um nakinn á neðri hæðinni. Rjómagumsið með græna marsipanlokinu var bara keypt af því að það passaði við letrið á bakkanum.

20091201

Gulltré

Við erum flutt. Eina ferðina enn. Að þessu sinni innanbæjar í ysta úthverfi. Hinum megin við hraðbrautina eru akrar og ég læt mig dreyma um svínaskítsfýluna sem á eftir að gjósa upp hér með vorinu. Ef eitthvað vekur mann betur en rotþróarstækja, þá er það lyktin af nýskítadreifðum túnum.


Það er kaldara hér en niðri í bæ. Jólatréð (eitt af tveim) er komið upp.

20091117

Sprauta

Snemma var ákveðið að bólusetja gjörvallt mannkyn hérlendis gegn nýju inflúensunni eins og hún kallast hér og búið að búa til voðalegt plan fyrir hvernig það ætti að gerast. Fólki var skipt í aldurshópa og áhættuhópa. Þá voru keyptir u.þ.b. 18 milljónir skammtar af bóluefninu eða nóg til að bólusetja alla tvisvar. Svo leið og beið, en ekkert gerðist. Bóluefnið kom ekki, plönin riðluðust. Heilsugæslustöðvarnar fengu eina og eina sprautu, fólk í áhættuhópum ruddist síðan í hrönnum inn á sjúkrahúsin fyrir tveim vikum, börnin voru bólusett í skólunum þremur vikum of seint. Fyrir nokkrum dögum var ákveðið að börn á aldrinum 6 mánaða til 3 ára ætti líka að bólusetja. R verður bólusett í byrjun desember. Svolítið sænskt. Allt rosa skipulagt en svo fokkast allt upp.


En, nú er röðin komin að aldurshópnum 30-39 ára og ég fór í bólusetningu í dag. Ég átti von á að þurfa að bíða í fleiri tíma (í gær komu 600 manns á heilsugæslustöðina milli fjögur og fimm og bóluefnið kláraðist). Eitthvað virtust þau hafa lært, því ég kom fimm mínútur í fjögur og var kominn út stundarfjórðungi síðar. Aukaverkanirnar létu ekki bíða eftir sér. Ég er gjörsamlega óviðræðuhæfur (heilinn fúnkerar bara ekki og ég get ómögulega klárað heila setningu), líkaminn svarar ekki (ég vil hreyfa vinstri vísifingur en hreyfi litutá í staðinn), hálf lamaður (hægri hönd óhreyfanleg), tungan kemst ekki fyrir í munninum. Annars hef ég sjaldan verið jafn vakandi og ofvirkur milli níu og tíu á kvöldin.

Mikið er annars gott að drekka mjólk með piparkökum!

20091026

Lykilharpan

Ég hlusta stundum á þátt í útvarpinu sem heitir På minuten. Þar keppa fjórir þátttakendur í að tala um ákveðið efni í eina mínútu án þess að hika, endurtaka sig eða byrja að tala um eitthvað annað en það sem átti að tala um. Meðan einn talar geta hinir hringt bjöllu og tekið orðið af þeim sem talar. Það verður þá að færa rök fyrir því af hverju sá sem talaði á ekki að fá að tala lengur. Um daginn var lykilharpa í „verðlaun“ fyrir þann sem fékk flest stig. Ég heillaðist algjörlega af hljómnum í þessu hljóðfæri.


Fyrir þann sem vill læra meira um lykilhörpu er bara að verða sér úti um sænskan fimmtíukrónuseðil.