20091211

Húsgögn og hádegismatur

Það var keypt sér rauðar bókahillur í IKEA og ljós yfir borðstofuborðið (fyrri eigendur höfðu skilið eftir forljóta plastljósakrónu í líki minimalístísks blóms). Nú vantar bara gardínurnar og maður getur farið að spankúlera um nakinn á neðri hæðinni. Rjómagumsið með græna marsipanlokinu var bara keypt af því að það passaði við letrið á bakkanum.

7 aths:

baun

Gvuð hvað þetta er fallegt.

Hrólfur S.

Ég fékk mér svona græna köku um daginn og varð fyrir verulegum vonbrigðum með hana.

baun

Er meiningin að marsípanið líti út eins og gúrkusneiðar?

krummi

Þessi bragðaðist ágætlega, en ég hafði svo sem ekki neinar væntingar um að þetta væri eitthvert geðveikt gúmmelaði.

Gúrkusneiðar? Á hverju ert þú?

baun

Á því að þetta marsípan sé í gúrkulíki.

Kristján

Mmmmm... Prinsessuterta... Væri til í að sleikja eina slíka núna !

Hrólfur S.

Oj, Kristján.