Sýnir færslur með efnisorðinu börn. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu börn. Sýna allar færslur

20110620

Ríkisborgararéttur

Ég á barn, dóttur, sem á sænska móður. Ragna er fædd í Noregi.

Við vorum ekki gift þegar hún fæddist og þar af leiðandi fékk hún ekki íslenskan ríkisborgararétt við fæðingu.

Við móðir hennar giftum okkur þegar hún var eins árs. Þá fékk hún sjálfkrafa íslenskan ríkisborgararétt, samhliða þeim sænska.

Nú eru lög og reglur þannig úr garði gerð að ef íslenskur karlmaður eignast barn erlendis með erlendri konu og þau eru ekki gift, þarf hann að sækja um það sérstaklega til Innanríkisráðuneytis að barnið fái íslenskan ríkisborgararétt og borga fyrir það 7 500 krónur. Í lögum um ríkisborgararétt stendur:

Eignist ógift kona, sem er erlendur ríkisborgari, barn erlendis með karlmanni sem er íslenskur ríkisborgari getur faðirinn, áður en barnið nær 18 ára aldri, óskað þess við dómsmálaráðuneytið að það öðlist íslenskan ríkisborgararétt, og skal hann hafa samráð við barnið hafi það náð 12 ára aldri. Leggi hann fram fullnægjandi gögn, að mati ráðuneytisins, um barnið og faðerni þess öðlast barnið íslenskan ríkisborgararétt við staðfestingu ráðuneytisins.

Mér fannst ég misrétti beittur, og þverskallaðist við það að sækja um ríkisborgararétt fyrir dóttur mína, þangað til ég komst að því að ég þyrfti ekki að gera það. Þá tók ég mig til og sendi Jafnréttisstofu fyrirspurn hvort reglurnar stæðust jafnréttislög. Fyrirspurnin var kannski hálfklunnaleg, en Jafnréttisstofa skildi meginatriðin og fór fram á greinargerð frá Innanríkisráðuneyti. Og svarið kom í dag. Það er hægt að ná í bréfið frá Jafnréttisstofu hér:

Bréf frá Jafnréttisstofu við fyrirspurn minni um lög um íslenskan ríkisborgararétt

Dreifið, deilið, lesið, hafið áhrif!

(þess má geta að sænskur karlmaður í sömu stöðu þarf ekki að greiða gjald eða sækja um það sérstaklega að barnið hans fái sænskan ríkisborgararétt, það er nóg að viðurkenna faðerni)

20110329

Vabbað

Það verður enginn engill í dag. Ég er ekki í englastuði þessa stundina.

Kennarinn hringdi í gær um tvöleytið og bað um að T yrði sóttur. Hann var kominn með hita og þar sem A-L var önnum kafin við að undirbúa kennslu fór ég og sótti ómegðina og vabbaði (sá um börnin). Þar sem A-L var að kenna í dag féll það í minn hlut að vabba í dag líka.

Börnin eru mjög auðveld viðureignar og ég kvarta ekki yfir því að vera heima með þeim, það er voðalega notalegt, en eftir að hafa ekki fengið hálfa sekúndu fyrir sjálfan sig í tvo daga er heilinn í manni gjörsamlega steiktur.

Ég greip því tækifærið þegar frúin kom loksins heim og hljóp út til að skipta um dekk á bílnum. Það má reyndar ekki skipta yfir á sumardekkin fyrr en 1. apríl, en skítt veri með það, geðheilsa mín var í húfi. Hér er mynd af hægra framdekki:



Núna eru börnin sofnuð og Dexter kominn í tækið.

*knùz*

20110327

Sunnudagur á sumartíma

Það var haldið upp á 8 ára afmæli í gær. Við tókum okkur saman foreldrar þriggja barna í bekknum og héldum stórveislu. Það var vellukkað þótt enginn hafi komið í sparifötunum. Það er sérstök lykt af þrjátíu börnum sem eru búin að úða í sig sælgæti og kökum og hlaupa viðstöðulaust í tvo klukkutíma. Tryllingsglampinn í augunum er rosalegur.

Við misstum svo klukkutímann sem við fengum í haust í nótt; það er kominn sumartími.

Mér leiðist þetta eilífa tímaflakk, en það er einn kostur við það að seinka klukkunni á vorin, nefnilega sá að klukkan er meira þegar sólin sest.

Dagurinn fór annars í snatterí. Fótboltaæfing, barnaafmæli nr. 2 þessa helgi (næstu helgi eru þau líka tvö), matarinnkaup fyrir vikuna. Ég var svo búinn á því þegar ég kom heim að ég lagðist upp í rúm og sofnaði. Ég HATA matvöruverslanir.

20110325

Daglegt amstur

Jæja, þá er komið að því eina ferðina enn. Heimsókninni til lögfræðingsins.

Við erum nefnilega svo ótrúlega heppin að maðurinn sem kallar sig föður stjúpsonar míns á erfitt með að láta okkur í friði og enn erfiðara með að vera samvinnuþýður, sem endaði í því fyrir jól að strákurinn þvertók fyrir að fara til föður síns. Núna er allt andlega ofbeldið gleymt og strákurinn vill hitta pabba sinn, sem lætur eins og ekkert hafi gerst, aftur.

Karlpungurinn hefur ævinlega gert allt til þess að gera líf okkar að helvíti (þótt það hafi til allrar guðs lukku batnað eftir að við fluttum). Núna verður sleginn nagli í kistuna, það verður sótt um að hann missi forræði yfir barninu. Það á allt eftir að fara í háaloft með tilheyrandi hótunum og veseni. Ég veit ekki hvernig ég á að lifa þetta sumar af ef það verður eins og sumarið 2007 ...

20110323

Að deila skrifstofu

Þangað til fyrir nokkrum vikum sátum við þrjú á skrifstofunni. Þá fékk eiginkona mín loksins eigin skrifstofu og við urðum tvö. Núna er hún sem ég deili skrifstofunni með búin að eignast barn og við erum aftur orðin þrjú á skrifstofunni.

Kallið mig karlrembu. Mér finnst í sjálfu sér allt í lagi að koma með börnin sín í vinnuna (það er reyndar ekki leyfilegt samkvæmt reglugerð háskólans hér), en mér finnst samt fulllangt gengið að mæta með ungabarn á skrifstofu sem maður deilir með öðrum.

20110322

Frelsi

Það sem er gott við að hafa slökkt á FB er frelsið. Að finnast maður ekki þurfa að fylgjast með öllu þessu fólki.

Bloggið er fínt. Hér er maður út af fyrir sig, það tekur stuttan tíma (nema þegar maður sekkur sér í einhverjar langlokur) og maður getur hvílt sig á því án þess að finna óþægindatilfinninguna hellast yfir sig.

Börnin eru sofnuð svo ég ætla að horfa á eitthvað fallegt, t.d. Paris, je taime, eða ekki.

20100815

Heima?


Vika líður fljótt hjá. A-L og T eru farin heim, en við R verðum nokkra daga hjá ömmu. Heima. Eða, er það heima? Mér finnst það varla lengur. Ég þekki ekki þetta Ísland sem ég heimsæki núna, það er svo allt, allt öðruvísi en landið sem ég fór frá fyrir rúmum tíu árum. Náttúran er eins. Það er að segja ef henni hefur verið hlíft. Orðunum niðurníðsla og skeytingarleysi hefur skotið upp í huga mér af og til síðustu viku, sérstaklega hér:



Fyrstu skiptin sem ég kom í heimsókn til Íslands fannst mér alltaf eins og ég ætti að þekkja alla, allir voru svo ótrúlega kunnuglegir. Núna finnst mér ég ekki þekkja neinn. Allt er breytt, ný, ljót hús, þau gömlu illa hirt. Ég vann Grasagarðinum þegar Fjölskyldugarðurinn var nýopnaður. Þá var fallegt þar. Núna er hann hálfhrörlegur greyið, tækin biluð, kofarnir illa málaðir, fólkið feitt og klósettin skítug.


Dýrin eru krúttleg.

20100519

Sumar

Eftir langt kuldakast kom loksins sumarveður í gær og vonandi helst það eitthvað. Mann er virkilega farið að lengja eftir hlýindum.


Garðurinn dafnar þrátt fyrir kulda og regn síðustu vikur. Við fengum lánað handsláttuvélina nágrannans í gær og T sló grasið í fyrsta sinn. Það tók ekki langan tíma.

Ég get varla beðið eftir því að morgunfrúrnar byrji að blómstra. Ég sé allavega ekki eftir að hafa hent þeim út svona snemma. Þær eru þéttar og stinnar í stilknum.

Rósmarín og salvía hlið við hlið í leirpotti.

R felur sig á bak við sýrenu. Klifurrósin lifði það af að ég klippti hana í mars.

20100222

Klippt og skorið

Einn ömurlegasti dagur mánaðarins var í síðustu viku. Hvort um sig höfðum við hjónin allt á hornum okkar og fundum hvort öðru allt til foráttu. Börnin voru með æðiber í rassi, og ekki viðræðuhæf, eins og illa hirtir hundar ... Þá settumst við niður við borðstofuborðið og gerðum klippimyndir. Hér er mín:


20091229

Gleðilega rest

20091113

Jólabarn II

Konan keypti svona blinkandi Jesúmyndir um daginn á spottprís. R og T voru alveg dolfallin yfir þessu. Það versta er að ljósin blinka svo hratt að Tourettes gamli færist allur í aukana þegar við höfum kveikt á þeim. Ætli við endum ekki bara á því að hafa þær á klósettinu.

20091029

Á háum hælum

Síðustu daga hefur R verið í hælaháum skóm (brúnir, stærð 36, þriggja-fjögurra sentimetra háir hælar) þegar við sækjum hana á leikskólann ... Hún var í krummafót í dag, alsæl.

20091025

Lína kemur í heimsókn bráðum

R er fullviss um að Lína Langsokkur, Tommi, Anna og Herra Níels komi bráðum í heimsókn. Þau eru bara rétt ókomin. Standa fyrir utan núna.


Þau eiga að fá bollur og saft og Lína fær stólinn hennar R lánaðan.

20091012

Svefnveður

Um helgar sefur R úti í vagni (á leikskólanum sofa þau inni) og það getur tekið allt að klukkutíma að fá hana til þess að sofna (ef það tekst þá á annað borð). Áður en við förum út sækir hún bók og tilkynnir manni að hún ætli ekki að sofa í vagninum, bara lesa.


Nú er óneitanlega komið haust. Hitastigið nær sjaldan langt upp fyrir tíu gráður og trén eru orðin hálfnakin. Himinninn er búinn að fá á sig þessa grásvörtu skýjahulu sem leggst yfir hér á veturna. Manni finnst alltaf eins og sé alveg að fara að rigna, en samt rignir ekkert of mikið. Sem betur fer.

20091009

Víla

„É vílar det ekki!“ segir R þegar henni líkar ekki eitthvað.


(Víla = gilla = líka)

Afmælissöngurinn er í miklu uppáhaldi þessa dagana, svona þegar hún syngur ekki Frerö Sjankö (Meistari Jakob) sem frönskumælandi bróðir hennar kenndi henni. Hann kemur svona út (þ.e. afmælissöngurinn, Frerö Sjankö er nánast fullkominn, enda bróðir hennar með fullkomnunaráráttu):

Hún e amlan í dag! (da capo ad lib)

20091004

Donkutúr

Það er bráðnauðsynlegt að vera með sólgleraugu þegar maður fer út í donkutúr. Sérstaklega þegar maður fer út í hvassviðrið eftir að sólin er sest.


Dauðinn

Rétt eftir að við fluttum inn í prófessorsíbúðina fann ég dauða kanínu í garðinum. Nokkrum dögum seinna gengum við fram á dauða dúfu á gangstétt. Síðan hefur R verið mjög upptekin af dauðanum.


Hún verður tveggja ára í næstu viku en bróðir hennar verður að heiman alla vikuna svo við höldum upp á afmælið í dag. Hún fékk dúkkuhús og þau leika sér með þetta og má vart sjá hvort er dolfallnara yfir rafmagnsljósum og klósettsetum sem er hægt að lyfta.

Allt í einu heyrist í miðjum leik: Kanínan er dáin!

20091003

Málfar

Þegar R ætlar að segja eitthvað merkilegt byrjar hún á því að segja vet du vad (veistu hvað). Herregud og typiskt bættust við í frasasafnið í gær. Þegar maður hrópar á hana og hún er upptekin, segir hún Jag håller på!


Oftast nær koma setningarnar fyrst á sænsku (með þykkum skánskum hreim). Stundum hermi ég eftir henni og spyr svo hvað hún hafi sagt. Þá endurtekur hún það á íslensku, eða því sem hún heldur að sé íslenska.

Við fórum í bæinn í dag í rigningunni (hún átti að sofa í kerrunni, en það fór náttúrlega öðruvísi en planað ... hún fékk nammi í staðinn, í öskju með mynd af apa á). Þá sagði hún: Där är apan (á skánsku verður það einhvern veginn dier ier oapan) og ég hermdi eftir henni og spurði svo hvað það væri á íslensku, jú her er úpin. Þegar hún man ekki íslenska orðið breytir hún bara sérhljóðunum aðeins.

20091001

Tannburstun

R er ekki hrifin af tannburstanum, eða öllu heldur, hún er ekki hrifin af því að það sé tannburstað hana. Mamma hennar fær alls ekki að gera það, en hún veit að hún kemst ekki upp með neitt múður við mig.


Sjálf getur hún burstað í sér tennurnar í heilu og hálfu tímana. Hún fékk svo loksins að tannbursta pabba í gær. Alveg þangað til tannburstinn minn fór fyrst upp í hana sjálfa og svo nefið á mér ...


20090908

Slysó


Þá hefur maður fengið að kynnast sænska heilbrigðiskerfinu og eins gott að krakkinn var kominn með kennitölu... Hún hljóp sem fætur toguðu inn í svefnherbergi, datt fram fyrir sig og fékk rúmbríkina svo kyrfilega í barkakílið að hún missti andann í tuttugu sekúndur og meðvitundina í einhverjar í viðbót. Það var hringt á sjúkrabíl í offorsi og áður en við vissum af því var íbúðin full af sjúkraliðum.

Hún var eiturhress þegar hún rankaði loksins við sér og það kjaftaði af henni hver tuska við karlana sem fengu allir að kynnast dúkku og íhníohní og svo átti pabbi að tala skánsku svo allir gætu hlegið smá...

Við fórum svo feðginin á slysó þar sem leikritið hélt áfram ... Hér er sérstök slysavarðsstofa fyrir börn þótt það þýði ekki að biðtíminn sé eitthvað styttri. Við vorum hvort um sig orðin heldur framlág þegar við fengum loksins að hitta lækni eftir rúma tveggja tíma bið.

Það heyrðist ekki múkk í henni þegar smásjánni var troðið ofan í hálsinn á henni gegn um nefið.

T var heldur svekktur yfir því að hún skyldi ekki hafa fengið neitt fyrir að hafa staðið sig svona vel. Ekki einu sinni límmiða...

Guð blessi Ísland.