20091004

Dauðinn

Rétt eftir að við fluttum inn í prófessorsíbúðina fann ég dauða kanínu í garðinum. Nokkrum dögum seinna gengum við fram á dauða dúfu á gangstétt. Síðan hefur R verið mjög upptekin af dauðanum.


Hún verður tveggja ára í næstu viku en bróðir hennar verður að heiman alla vikuna svo við höldum upp á afmælið í dag. Hún fékk dúkkuhús og þau leika sér með þetta og má vart sjá hvort er dolfallnara yfir rafmagnsljósum og klósettsetum sem er hægt að lyfta.

Allt í einu heyrist í miðjum leik: Kanínan er dáin!

3 aths:

Nafnlaus

...stoppaði við myndina neðst til vinstri!!

krummi

HAHA! Ég var ekki búinn að taka eftir þessu!

Nafnlaus

Ég velti þessu einmitt fyrir mér í gær þegar ég fékk myndirnar frá þér. Hahaha
mhg