20091029

Á háum hælum

Síðustu daga hefur R verið í hælaháum skóm (brúnir, stærð 36, þriggja-fjögurra sentimetra háir hælar) þegar við sækjum hana á leikskólann ... Hún var í krummafót í dag, alsæl.

20091026

Lykilharpan

Ég hlusta stundum á þátt í útvarpinu sem heitir På minuten. Þar keppa fjórir þátttakendur í að tala um ákveðið efni í eina mínútu án þess að hika, endurtaka sig eða byrja að tala um eitthvað annað en það sem átti að tala um. Meðan einn talar geta hinir hringt bjöllu og tekið orðið af þeim sem talar. Það verður þá að færa rök fyrir því af hverju sá sem talaði á ekki að fá að tala lengur. Um daginn var lykilharpa í „verðlaun“ fyrir þann sem fékk flest stig. Ég heillaðist algjörlega af hljómnum í þessu hljóðfæri.


Fyrir þann sem vill læra meira um lykilhörpu er bara að verða sér úti um sænskan fimmtíukrónuseðil.

20091025

Lína kemur í heimsókn bráðum

R er fullviss um að Lína Langsokkur, Tommi, Anna og Herra Níels komi bráðum í heimsókn. Þau eru bara rétt ókomin. Standa fyrir utan núna.


Þau eiga að fá bollur og saft og Lína fær stólinn hennar R lánaðan.

20091023

Samviska

Einhver pinni sem kallar sig Sigurbjörn skrifar hér að konur eigi auðvelt með að fá samviskubit og fær steininn náttúrlega strax í hausinn (mér sýnist þessi gæi vera algjör vitleysingur ... alla vega gasprar hann um allt og ekkert á eyjunni ... af öllum stöðum):

Ég get bara svarað fyrir sjálfan mig.

Ég er með drulluógeðslega mikið samviskubit sinkt og heilagt yfir öllu og engu. Mest yfir því að ég sinni börnunum mínum ekki nógu vel, að ég setji ekki nógu oft í þvottavélina, að ég taki ekki nógu oft til eftir mig, að ég fari of seint að sofa, að ég sofi of lengi frameftir, að ég drekki of mikið kaffi og borði of mikið súkkulaði, að ég einbeiti mér ekki nógu vel í vinnunni, að ég horfi of mikið á sjónvarp og lesi ekki í staðinn, að ég hreyfi mig ekki nógu mikið, að ég tannbursti mig ekki nógu oft, að ég búi of fjarri fjölskyldunni, að ég segi konunni minni allt of sjaldan að ég elski hana. Ég á ekkert auðvelt með að bægja samviskubitinu frá mér.

Sigurbjörn myndi kannski segja að ég væri bara kona inn við beinið, en ég held að hann hafi rangt fyrir sér. Ég held að konur eigi kannski auðveldara með að viðurkenna það að þær hafi samviskubit. Er það það sama og að karlar eigi auðveldara með að bægja því frá sér?

20091019

Óværan kvalin

Konan flaug norður á bóginn í gær og mætir nú óværunni, þ.e.a.s. sínum fyrrverandi, í réttarsal vegna umgengissamnings sem hann hefur þráskallast við að samþykkja nema hin og þessi skilyrði séu uppfyllt, öll jafnfurðuleg og fjarri raunveruleikanum að það hálfa væri yfirdrifið ... en það er kannski ekki við öðru að búast frá manni sem er jafnfurðulegur og veruleikafirrtur og hann. Maður vonar bara að hann fái síðasta kjaftshöggið núna.


Ég á mjög erfitt með að einbeita mér .... Brúðkaupsafmæli á morgun.

20091012

Svefnveður

Um helgar sefur R úti í vagni (á leikskólanum sofa þau inni) og það getur tekið allt að klukkutíma að fá hana til þess að sofna (ef það tekst þá á annað borð). Áður en við förum út sækir hún bók og tilkynnir manni að hún ætli ekki að sofa í vagninum, bara lesa.


Nú er óneitanlega komið haust. Hitastigið nær sjaldan langt upp fyrir tíu gráður og trén eru orðin hálfnakin. Himinninn er búinn að fá á sig þessa grásvörtu skýjahulu sem leggst yfir hér á veturna. Manni finnst alltaf eins og sé alveg að fara að rigna, en samt rignir ekkert of mikið. Sem betur fer.

20091009

Víla

„É vílar det ekki!“ segir R þegar henni líkar ekki eitthvað.


(Víla = gilla = líka)

Afmælissöngurinn er í miklu uppáhaldi þessa dagana, svona þegar hún syngur ekki Frerö Sjankö (Meistari Jakob) sem frönskumælandi bróðir hennar kenndi henni. Hann kemur svona út (þ.e. afmælissöngurinn, Frerö Sjankö er nánast fullkominn, enda bróðir hennar með fullkomnunaráráttu):

Hún e amlan í dag! (da capo ad lib)

20091007

Ælt

R er tveggja ára í dag. Amma Íslam sendi lopapeysu, pils og brók á dúkku svo nú þarf hún ekki að dröslast um nakin lengur.

Amma Íslam kallar ekki allt ömmu sína enda hefur hún lifað tímana tvenna. Hún er samt farin að æla af fréttum og bloggi og "ef þetta prinsip helgislepjulið í VG fellir ríkisstjórnina þá hendi ég útvarpinu mínu út um gluggann og sjónvarpinu á eftir". Ég skil nú ekkert í henni að hún skuli ekki vera búin að því nú þegar.

20091004

Donkutúr

Það er bráðnauðsynlegt að vera með sólgleraugu þegar maður fer út í donkutúr. Sérstaklega þegar maður fer út í hvassviðrið eftir að sólin er sest.


Dauðinn

Rétt eftir að við fluttum inn í prófessorsíbúðina fann ég dauða kanínu í garðinum. Nokkrum dögum seinna gengum við fram á dauða dúfu á gangstétt. Síðan hefur R verið mjög upptekin af dauðanum.


Hún verður tveggja ára í næstu viku en bróðir hennar verður að heiman alla vikuna svo við höldum upp á afmælið í dag. Hún fékk dúkkuhús og þau leika sér með þetta og má vart sjá hvort er dolfallnara yfir rafmagnsljósum og klósettsetum sem er hægt að lyfta.

Allt í einu heyrist í miðjum leik: Kanínan er dáin!

20091003

Málfar

Þegar R ætlar að segja eitthvað merkilegt byrjar hún á því að segja vet du vad (veistu hvað). Herregud og typiskt bættust við í frasasafnið í gær. Þegar maður hrópar á hana og hún er upptekin, segir hún Jag håller på!


Oftast nær koma setningarnar fyrst á sænsku (með þykkum skánskum hreim). Stundum hermi ég eftir henni og spyr svo hvað hún hafi sagt. Þá endurtekur hún það á íslensku, eða því sem hún heldur að sé íslenska.

Við fórum í bæinn í dag í rigningunni (hún átti að sofa í kerrunni, en það fór náttúrlega öðruvísi en planað ... hún fékk nammi í staðinn, í öskju með mynd af apa á). Þá sagði hún: Där är apan (á skánsku verður það einhvern veginn dier ier oapan) og ég hermdi eftir henni og spurði svo hvað það væri á íslensku, jú her er úpin. Þegar hún man ekki íslenska orðið breytir hún bara sérhljóðunum aðeins.

20091001

Tannburstun

R er ekki hrifin af tannburstanum, eða öllu heldur, hún er ekki hrifin af því að það sé tannburstað hana. Mamma hennar fær alls ekki að gera það, en hún veit að hún kemst ekki upp með neitt múður við mig.


Sjálf getur hún burstað í sér tennurnar í heilu og hálfu tímana. Hún fékk svo loksins að tannbursta pabba í gær. Alveg þangað til tannburstinn minn fór fyrst upp í hana sjálfa og svo nefið á mér ...