Ælt
R er tveggja ára í dag. Amma Íslam sendi lopapeysu, pils og brók á dúkku svo nú þarf hún ekki að dröslast um nakin lengur.
Amma Íslam kallar ekki allt ömmu sína enda hefur hún lifað tímana tvenna. Hún er samt farin að æla af fréttum og bloggi og "ef þetta prinsip helgislepjulið í VG fellir ríkisstjórnina þá hendi ég útvarpinu mínu út um gluggann og sjónvarpinu á eftir". Ég skil nú ekkert í henni að hún skuli ekki vera búin að því nú þegar.

2 aths:
Til hamingju með stórafmæli R og ég tek undir með mömmu þinni.
Til hamingju með litlu skottu:)
Og mér heyrist mamma þín alveg vera með´etta.
ATHS.