Sýnir færslur með efnisorðinu líkami. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu líkami. Sýna allar færslur

20100604

Hiti

Síðustu dagar hafa verið erfiðir. Ég hef næstum því ekki getað gengið og nú er komið í ljós að ég þarf að fara í uppskurð. Þegar ég var táningur hafnaði stýrið á hjólinu mínu á kafi í klofinu á mér og það hefur hvað eftir annað byrjað að gera mér lífið leitt. Það verður þá guðsblessunarlega meira pláss í brókunum.

Er ekki dásamlegt að geta setið úti langt fram á kvöld, spjallað, hlegið, drukkið? Sumarið léttir lundina, og vermir sálina. Mig svíður í kinnarnar.

20100410

Kláði

Útbrot og ofsakláði eru tvö orð sem lýsa lífi mínu vel. Ég hef reynt að taka ýmis ofnæmislyf en fæ sjálfsmorðshugsanir af þeim öllum.


Svo benti læknirinn, nágranni minn, mér á enn eitt ofnæmislyf, ólíkt hinum af því að maður verður ekki þreyttur af því. Það kostar náttúrlega hvítuna úr augunum og eftir þrjár pillur er ég kominn með allar hugsanlegar aukaverkanir .... sénsinn að ég nenni að taka fleiri ...

20091211

Húsgögn og hádegismatur

Það var keypt sér rauðar bókahillur í IKEA og ljós yfir borðstofuborðið (fyrri eigendur höfðu skilið eftir forljóta plastljósakrónu í líki minimalístísks blóms). Nú vantar bara gardínurnar og maður getur farið að spankúlera um nakinn á neðri hæðinni. Rjómagumsið með græna marsipanlokinu var bara keypt af því að það passaði við letrið á bakkanum.

20091117

Sprauta

Snemma var ákveðið að bólusetja gjörvallt mannkyn hérlendis gegn nýju inflúensunni eins og hún kallast hér og búið að búa til voðalegt plan fyrir hvernig það ætti að gerast. Fólki var skipt í aldurshópa og áhættuhópa. Þá voru keyptir u.þ.b. 18 milljónir skammtar af bóluefninu eða nóg til að bólusetja alla tvisvar. Svo leið og beið, en ekkert gerðist. Bóluefnið kom ekki, plönin riðluðust. Heilsugæslustöðvarnar fengu eina og eina sprautu, fólk í áhættuhópum ruddist síðan í hrönnum inn á sjúkrahúsin fyrir tveim vikum, börnin voru bólusett í skólunum þremur vikum of seint. Fyrir nokkrum dögum var ákveðið að börn á aldrinum 6 mánaða til 3 ára ætti líka að bólusetja. R verður bólusett í byrjun desember. Svolítið sænskt. Allt rosa skipulagt en svo fokkast allt upp.


En, nú er röðin komin að aldurshópnum 30-39 ára og ég fór í bólusetningu í dag. Ég átti von á að þurfa að bíða í fleiri tíma (í gær komu 600 manns á heilsugæslustöðina milli fjögur og fimm og bóluefnið kláraðist). Eitthvað virtust þau hafa lært, því ég kom fimm mínútur í fjögur og var kominn út stundarfjórðungi síðar. Aukaverkanirnar létu ekki bíða eftir sér. Ég er gjörsamlega óviðræðuhæfur (heilinn fúnkerar bara ekki og ég get ómögulega klárað heila setningu), líkaminn svarar ekki (ég vil hreyfa vinstri vísifingur en hreyfi litutá í staðinn), hálf lamaður (hægri hönd óhreyfanleg), tungan kemst ekki fyrir í munninum. Annars hef ég sjaldan verið jafn vakandi og ofvirkur milli níu og tíu á kvöldin.

Mikið er annars gott að drekka mjólk með piparkökum!

20091113

Þjakað

Ég er kominn með sinaskeiðabólgur og stífa fingur af því að klippa og líma úr skjölum. Svo eru augun í mér orðin svo þurr að linsurnar færast upp og niður með augnlokunum og skrapa hornhimnurnar. Hausverkurinn er ógurlegur og mér er svo mikið mál að ég míg örugglega á mig ef ég stend upp. Mig klæjar í allan líkamann (konan bannar mér að byrja aftur á ataraxinu af því að þá sef ég í heila viku) og gyllinæðin sprakk áðan. Maður er svei mér þjakaður.


Ó, hvað helgar geta verið erfiðar ...

Ég er búinn að heimta bidé í nýja húsið.

20091001

Tannburstun

R er ekki hrifin af tannburstanum, eða öllu heldur, hún er ekki hrifin af því að það sé tannburstað hana. Mamma hennar fær alls ekki að gera það, en hún veit að hún kemst ekki upp með neitt múður við mig.


Sjálf getur hún burstað í sér tennurnar í heilu og hálfu tímana. Hún fékk svo loksins að tannbursta pabba í gær. Alveg þangað til tannburstinn minn fór fyrst upp í hana sjálfa og svo nefið á mér ...


20090914

Hlíft sér við e-u

Ég fæ svo mikinn hausverk af því að skrifa eyjan.is að ég fer aldrei þangað inn.


Guð blessi Ísland.