Hiti
Síðustu dagar hafa verið erfiðir. Ég hef næstum því ekki getað gengið og nú er komið í ljós að ég þarf að fara í uppskurð. Þegar ég var táningur hafnaði stýrið á hjólinu mínu á kafi í klofinu á mér og það hefur hvað eftir annað byrjað að gera mér lífið leitt. Það verður þá guðsblessunarlega meira pláss í brókunum.
Er ekki dásamlegt að geta setið úti langt fram á kvöld, spjallað, hlegið, drukkið? Sumarið léttir lundina, og vermir sálina. Mig svíður í kinnarnar.

3 aths:
Stýrið er altsvo ekki í klofinu, heldur skaðinn sem það olli.
Ái:(
Ég hef sjálfur glímt við langvarandi vanda í vinstri öxl ! Auk svefnvanda !
ATHS.