Miðsumarmorgunn
Sólblóm og bergsóley. Nágrannarnir (hinum megin við skjólvegginn) eru líka með bergsóley sem blómstaði í síðustu viku, blómin eru risastór og fjólublá og þekja næstum því allan vegginn. Mín á að blómstra rauðum blómum.

Hvítu þræðirnir eru húsgarn sem ég batt sólblómin upp með þegar ég kom heim úr ferðalagi um daginn. Konan hafði glápt á það aðgerðalaus þegar blómin brotnuðu næstum því í slagveðursrigningu.
Klifurrósarknúppar. Ég fæ gæsahúð af tilhugsuninni um að þetta eigi eftir að opna sig einhvern tíma. Ég vona bara svo innilega að það gerist á Jónsmessu. Það væri svo fallegt.



Blómstrandi morgunfrú. Þessi er hálfræfilsleg greyið. Ég bjóst við risastórum blómum og að hún væri aðeins lágvaxnari, svona eins og morgunfrúrnar sem mamma var með í garðinum fyrir norðan í den. Þessar ná mér upp á hné og blómin eru varla stærri en fingurbjörg ...


2 aths:
Mikið er þetta flott hjá þér Gunnar Hrafn
Þú ert með svaka grænar fingur :)
g
Og bara góður á lyklaborðinu líka. M
ATHS.