Sýnir færslur með efnisorðinu garðyrkja. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu garðyrkja. Sýna allar færslur

20110404

Sumar

Ef maður á að trúa sænsku veðurstofunni, þá er komið sumar. Meðalhitinn fór nefnilega ekki niðurfyrir 10°C síðasta dægrið. Það er gott.

Konan spurði mig í gær hvort ég ætlaði ekkert að sá sumarblómum og ég fékk kvíðakast og byrjaði samstundis að svitna af angist og hljóp út til að þrífa bílinn. Ég vil alveg hafa garðinn fullan af blómum, en ég hef ekki þolinmæði í mér til þess að standa í sáningum. Svo grunar mig að allt drepist úr þurrki ef manni skyldi detta í hug að bregða sér af bæ í nokkra daga. Og það er nú bara þannig að ég hef jafnmiklar áhyggjur af blómunum mínum og börnunum mínum ... og það er varla á það bætandi.

Ætli maður kaupi ekki bara eitthvert ódýrt rusl sem drepst á einum mánuði og láti þar við standa.

Bíllinn er allavega hreinn utan sem innan.

20100728

Sólblóm

Það tók kipp hjartað í mér þegar ég sá sólblómin eftir tveggja vikna fjarveru.


Ég veit ekki hvort gladdi mig meira, það að þau lifðu þurrkinn af, eða það að þau eru ekki enn búin að blómstra. En það stærsta, sem er tæplega þriggja metra hátt, tekur greinilega alla næringuna frá hinum.

20100624

Útsprungin

Hrútspunginn? Nei, úsprungin. Rósin er útsprungin! Á Jónsmessu.


Sólblómin eiga nú hug minn allan og ég eyði öllum kvöldum í það að binda þau upp upp á nýtt svo þræðirnir skerist ekki í blöðin og stilkana. Konan kvartar sáran yfir því að það séu aldrei teknar myndir af henni. Hún þarf að lauma sér inn á þær í staðinn.

20100622

Miðsumarmorgunn

Sólblóm og bergsóley. Nágrannarnir (hinum megin við skjólvegginn) eru líka með bergsóley sem blómstaði í síðustu viku, blómin eru risastór og fjólublá og þekja næstum því allan vegginn. Mín á að blómstra rauðum blómum.



Hvítu þræðirnir eru húsgarn sem ég batt sólblómin upp með þegar ég kom heim úr ferðalagi um daginn. Konan hafði glápt á það aðgerðalaus þegar blómin brotnuðu næstum því í slagveðursrigningu.

Klifurrósarknúppar. Ég fæ gæsahúð af tilhugsuninni um að þetta eigi eftir að opna sig einhvern tíma. Ég vona bara svo innilega að það gerist á Jónsmessu. Það væri svo fallegt.


Blómstrandi morgunfrú. Þessi er hálfræfilsleg greyið. Ég bjóst við risastórum blómum og að hún væri aðeins lágvaxnari, svona eins og morgunfrúrnar sem mamma var með í garðinum fyrir norðan í den. Þessar ná mér upp á hné og blómin eru varla stærri en fingurbjörg ...

20100519

Sumar

Eftir langt kuldakast kom loksins sumarveður í gær og vonandi helst það eitthvað. Mann er virkilega farið að lengja eftir hlýindum.


Garðurinn dafnar þrátt fyrir kulda og regn síðustu vikur. Við fengum lánað handsláttuvélina nágrannans í gær og T sló grasið í fyrsta sinn. Það tók ekki langan tíma.

Ég get varla beðið eftir því að morgunfrúrnar byrji að blómstra. Ég sé allavega ekki eftir að hafa hent þeim út svona snemma. Þær eru þéttar og stinnar í stilknum.

Rósmarín og salvía hlið við hlið í leirpotti.

R felur sig á bak við sýrenu. Klifurrósin lifði það af að ég klippti hana í mars.

20100429

Gardínublogg verður garðyrkjublogg

Aldeilis munur að geta sprangað um í netabolnum og speedo-skýlunni án þess að krókna úr kulda alla tíð!

[...]

Við T sáðum sólblómafræjum í byrjun apríl og þau spretta eins og illgresi. Þetta urðu u.þ.b. þrjátíu plöntur. Ég henti öllum nema tólf. Þau verða náttúrlega svo stór, sólblómin og garðurinn er svo lítill að það er ekki pláss fyrir meira.

Við keyptum svo stunguspaða og mold um daginn og í gær gróf ég loksins fyrir beði úti undir húsvegg. Ég fékk aðsvif þegar ég stakk spaðanum í gegn um grasþökuna og lenti á hálfgerðum sementsalla úr sandi og möl ... ekki nema von að aumingjans grasið sé með blettaskalla!

Sólblómin dafna nú í beðinu. Hér er mynd (kústurinn í horninu er Lavandula augustifolia):



(Mig hefur alltaf dreymt um að skrifa svona garðyrkju-/innanhússhönnunarblogg. Hér er önnur mynd sem sýnir hversu natinn ég er við uppstillingarnar):




Myndin sýnir klifurrósina (og eitthvert illgresi sem ég kann ekki deili á undir), morgunfrúrnar í zinkbalanum (mjög fansí) og rósmarínið mitt og salvíuna! Þetta er svo fallegt að ég tárast!

Draumar mínir rætast einn af öðrum.