20110404

Sumar

Ef maður á að trúa sænsku veðurstofunni, þá er komið sumar. Meðalhitinn fór nefnilega ekki niðurfyrir 10°C síðasta dægrið. Það er gott.

Konan spurði mig í gær hvort ég ætlaði ekkert að sá sumarblómum og ég fékk kvíðakast og byrjaði samstundis að svitna af angist og hljóp út til að þrífa bílinn. Ég vil alveg hafa garðinn fullan af blómum, en ég hef ekki þolinmæði í mér til þess að standa í sáningum. Svo grunar mig að allt drepist úr þurrki ef manni skyldi detta í hug að bregða sér af bæ í nokkra daga. Og það er nú bara þannig að ég hef jafnmiklar áhyggjur af blómunum mínum og börnunum mínum ... og það er varla á það bætandi.

Ætli maður kaupi ekki bara eitthvert ódýrt rusl sem drepst á einum mánuði og láti þar við standa.

Bíllinn er allavega hreinn utan sem innan.

1 aths:

Þórdís Gísladóttir

Keyptu bara slatta og megi það drepast ef það drepst. Geturðu annars ekki bara fyllt garðinn af fjölæru? Já og þrífa bíl, hvað er það? Þú myndir örugglega ekki taka sénsinn á að setjast upp í minn, hann hefur aldrei verið þrifinn.