Áhættusækni
Orðin sem flugu í gegn um höfuðið á mér á leiðinni á kontórið í morgun voru: áhættusækni, þvergirðingsháttur, tilætlunarsemi, tækifærissinni.
Nú megið þið geta hvað ég var að hugsa um.
Ég ákvað í síðustu viku að hætta að fylgjast með íslenskum fjölmiðlum. Ég gerði þetta líka í kringum áramótin 2008-2009 en var aftur fallinn í þá gryfju að lesa DV og Vísi á netinu og hlusta á Spegilinn. Nú er ég guðsblessunarlega óvitandi um hvað gerist á Íslandi (nema maður sér náttúrlega hvað fólk er að æsa sig yfir í gegn um Facebook). Ég skammast mín fyrir að þurfa að kenna mig við þjóð sem getur ekki gert samninga við nágrannaþjóðir sínar. Mér finnst það þyngra en tárum taki að hrunið skuli ekki hafa leitt af sér málefnalegri umræðuhefð á Íslandi.
Í stað þess grassera skinkur og hnakkar og börn alast upp við það að það sé best að hegða sér bara eins og manni sýnist. Græðgi er orðin að dyggð á Íslandi.

2 aths:
Stór sorgmæddurkall hér.
Þú ert nú samt eiginlega að tala um helming þjóðarinnar, sem auðvitað er andskotans nóg.
ATHS.