Gardínublogg verður garðyrkjublogg
Aldeilis munur að geta sprangað um í netabolnum og speedo-skýlunni án þess að krókna úr kulda alla tíð!
[...]
Við keyptum svo stunguspaða og mold um daginn og í gær gróf ég loksins fyrir beði úti undir húsvegg. Ég fékk aðsvif þegar ég stakk spaðanum í gegn um grasþökuna og lenti á hálfgerðum sementsalla úr sandi og möl ... ekki nema von að aumingjans grasið sé með blettaskalla!
Sólblómin dafna nú í beðinu. Hér er mynd (kústurinn í horninu er Lavandula augustifolia):
(Mig hefur alltaf dreymt um að skrifa svona garðyrkju-/innanhússhönnunarblogg. Hér er önnur mynd sem sýnir hversu natinn ég er við uppstillingarnar):

Draumar mínir rætast einn af öðrum.


1 aths:
Þetta er svaka flott hjá þér og spennandi líka. Ég vona að þú haldir áfram að blogga um garð&gróður
:) Gigja
ATHS.