20091023

Samviska

Einhver pinni sem kallar sig Sigurbjörn skrifar hér að konur eigi auðvelt með að fá samviskubit og fær steininn náttúrlega strax í hausinn (mér sýnist þessi gæi vera algjör vitleysingur ... alla vega gasprar hann um allt og ekkert á eyjunni ... af öllum stöðum):

Ég get bara svarað fyrir sjálfan mig.

Ég er með drulluógeðslega mikið samviskubit sinkt og heilagt yfir öllu og engu. Mest yfir því að ég sinni börnunum mínum ekki nógu vel, að ég setji ekki nógu oft í þvottavélina, að ég taki ekki nógu oft til eftir mig, að ég fari of seint að sofa, að ég sofi of lengi frameftir, að ég drekki of mikið kaffi og borði of mikið súkkulaði, að ég einbeiti mér ekki nógu vel í vinnunni, að ég horfi of mikið á sjónvarp og lesi ekki í staðinn, að ég hreyfi mig ekki nógu mikið, að ég tannbursti mig ekki nógu oft, að ég búi of fjarri fjölskyldunni, að ég segi konunni minni allt of sjaldan að ég elski hana. Ég á ekkert auðvelt með að bægja samviskubitinu frá mér.

Sigurbjörn myndi kannski segja að ég væri bara kona inn við beinið, en ég held að hann hafi rangt fyrir sér. Ég held að konur eigi kannski auðveldara með að viðurkenna það að þær hafi samviskubit. Er það það sama og að karlar eigi auðveldara með að bægja því frá sér?

3 aths:

baun

Þetta er ákaflega góð spurning, og hallast ég að því að karlar finni til rétt eins og konur, en viðurkenni það ekki. Dæmi: Minn kall segir alltaf "nei" þegar ég spyr hvort honum sé kalt (jafnvel þótt grýlukerti standi útúr nösunum á honum). Er þetta spurning um að geta ekki viðurkennt veikleika? Eða spurning um að geta ekki sett tilfinningar í orð?

krummi

Hvort tveggja, kannski.

Nafnlaus

Ég tók nú athugasemd Sigurbjarnar ekki alvarlega, enda hefur reynslan kennt mér að taka sigurbjörnum þessa heims ekki of alvarlega svona heilt yfir. Karlarnir í lífi mínu eru jafnbitnir og ég af þessari óáran og eiga jafnmiserfitt með að vinna úr þessu og konurnar í lífi mínu. Ég get, í fljótu bragði, ekki séð neitt samhengi milli kyns og þess að læra að sætta sig við blessað samviskubitið. Kristín í París.