20091019

Óværan kvalin

Konan flaug norður á bóginn í gær og mætir nú óværunni, þ.e.a.s. sínum fyrrverandi, í réttarsal vegna umgengissamnings sem hann hefur þráskallast við að samþykkja nema hin og þessi skilyrði séu uppfyllt, öll jafnfurðuleg og fjarri raunveruleikanum að það hálfa væri yfirdrifið ... en það er kannski ekki við öðru að búast frá manni sem er jafnfurðulegur og veruleikafirrtur og hann. Maður vonar bara að hann fái síðasta kjaftshöggið núna.


Ég á mjög erfitt með að einbeita mér .... Brúðkaupsafmæli á morgun.

2 aths:

Nafnlaus

Í raun er bara hægt að senda knús og hjörtu, fyrst maður getur ekki sent ykkur stjörnulögfræðing... Parísard.

Nafnlaus

Krossum putta!