Um helgar sefur R úti í vagni (á leikskólanum sofa þau inni) og það getur tekið allt að klukkutíma að fá hana til þess að sofna (ef það tekst þá á annað borð). Áður en við förum út sækir hún bók og tilkynnir manni að hún ætli ekki að sofa í vagninum, bara lesa.

Nú er óneitanlega komið haust. Hitastigið nær sjaldan langt upp fyrir tíu gráður og trén eru orðin hálfnakin. Himinninn er búinn að fá á sig þessa grásvörtu skýjahulu sem leggst yfir hér á veturna. Manni finnst alltaf eins og sé alveg að fara að rigna, en samt rignir ekkert of mikið. Sem betur fer.
1 aths:
Hvað er þetta eiginlega. HH frændi hennar sefur með allnokkrar bækur undir koddanum ... og fer ekki úr húsi án þess að hafa bækur með í poka.
M
ATHS.