Daglegt amstur
Jæja, þá er komið að því eina ferðina enn. Heimsókninni til lögfræðingsins.
Við erum nefnilega svo ótrúlega heppin að maðurinn sem kallar sig föður stjúpsonar míns á erfitt með að láta okkur í friði og enn erfiðara með að vera samvinnuþýður, sem endaði í því fyrir jól að strákurinn þvertók fyrir að fara til föður síns. Núna er allt andlega ofbeldið gleymt og strákurinn vill hitta pabba sinn, sem lætur eins og ekkert hafi gerst, aftur.
Karlpungurinn hefur ævinlega gert allt til þess að gera líf okkar að helvíti (þótt það hafi til allrar guðs lukku batnað eftir að við fluttum). Núna verður sleginn nagli í kistuna, það verður sótt um að hann missi forræði yfir barninu. Það á allt eftir að fara í háaloft með tilheyrandi hótunum og veseni. Ég veit ekki hvernig ég á að lifa þetta sumar af ef það verður eins og sumarið 2007 ...

4 aths:
Manni finnst fræg tilvitnun Sartre oftar en ekki hitta naglann á höfuðið.
L'enfer, c'est les autres
Svíður sárt brenndum (þarna keppir Guðrún frá Lundi við Fransmanninn).
Rómverjarnir vou með þetta.
Illegitimus non carboranum!
ATHS.