20100815

Heima?


Vika líður fljótt hjá. A-L og T eru farin heim, en við R verðum nokkra daga hjá ömmu. Heima. Eða, er það heima? Mér finnst það varla lengur. Ég þekki ekki þetta Ísland sem ég heimsæki núna, það er svo allt, allt öðruvísi en landið sem ég fór frá fyrir rúmum tíu árum. Náttúran er eins. Það er að segja ef henni hefur verið hlíft. Orðunum niðurníðsla og skeytingarleysi hefur skotið upp í huga mér af og til síðustu viku, sérstaklega hér:



Fyrstu skiptin sem ég kom í heimsókn til Íslands fannst mér alltaf eins og ég ætti að þekkja alla, allir voru svo ótrúlega kunnuglegir. Núna finnst mér ég ekki þekkja neinn. Allt er breytt, ný, ljót hús, þau gömlu illa hirt. Ég vann Grasagarðinum þegar Fjölskyldugarðurinn var nýopnaður. Þá var fallegt þar. Núna er hann hálfhrörlegur greyið, tækin biluð, kofarnir illa málaðir, fólkið feitt og klósettin skítug.


Dýrin eru krúttleg.

6 aths:

baun

Aðspurður kvaðst Gunnar kunna vel við land og þjóð.

Hrólfur S.

Svo er klóaklykt hérna.

baun

Ég sá líka tvo dauða þresti í gær og unglinga kasta rusli út um gluggann á bíl.

Nafnlaus

kannski er ég bara þannig að ég kann best við mig í sollinum, en ég sakna landsins meira núna eftir að allt varð meira sjabbí (gæti ekki verið meira sammála, ótrúlega sjabbí bæði úti í "náttúrunni" og niðri í miðbæ Rvk). París.

Kristján

Fallega skrifað.

Nafnlaus

tja, húsin hér í kring um mig eru ekki verr hirt heldur betur, reyndar. En sama má svo sem ekki segja um Hverfisgötuna og fleiri.