20110323

Að deila skrifstofu

Þangað til fyrir nokkrum vikum sátum við þrjú á skrifstofunni. Þá fékk eiginkona mín loksins eigin skrifstofu og við urðum tvö. Núna er hún sem ég deili skrifstofunni með búin að eignast barn og við erum aftur orðin þrjú á skrifstofunni.

Kallið mig karlrembu. Mér finnst í sjálfu sér allt í lagi að koma með börnin sín í vinnuna (það er reyndar ekki leyfilegt samkvæmt reglugerð háskólans hér), en mér finnst samt fulllangt gengið að mæta með ungabarn á skrifstofu sem maður deilir með öðrum.

6 aths:

HT

Mér finnst þetta algjört tillitsleysi við kontórinn og barnið...

Nafnlaus

Langar þig að eignast fleiri börn?
M

krummi

Það er físískt ómögulegt. Klippt og skorið.

Nafnlaus

Mér finnst þetta algerlega vera mál sem þarf að ræða og vera með á hreinu að trufli ekki aðra. En ég skil reyndar bara engan veginn að fólk vilji mæta í vinnuna rétt eftir að hafa fætt barn, en ég er kannski of mikil prinsessa í mér.

Nafnlaus

Æ, fokk, ég gleymdi mér í smá stund. Ég er ekki prinsessa, ég er vitanlega ekkert annað en drottning!

Elísabet

Segi það sama og drottningin hér á undan.