20110323

Að kaupa köttinn í sekknum

Ég verðlaunaði mig fyrir að hætta á FB með því að kaupa mér flík á 80% afslætti.

Hún kom með póstinum í dag. Með þjófavörn í ... hvílíkur bömmer!

6 aths:

Þórdís Gísladóttir

Þú ættir að hafa samband við neytendafrömuðinn Sverker Olofsson og mæta í sjónvarpið með flíkina.

krummi

Ég náði þjóvavörninni úr. Með herkjum.

Nafnlaus

Ég vann einu sinni með stelpu sem nýtti matartímann í að stela úr búðum. Hún sagði mér að það væri ekkert mál að slíta þjófavarnir úr, en maður fengi reyndar smá straum.

krummi

Þetta var svona þjófavörn með litapatrónum inn í. Ég bræddi hana í sundur yfir kertaljósi.

Þórdís Gísladóttir

Sumir þjófar klippa hreinlega vörnina úr og skilja eftir í mátunarklefanum. Reyndar pínu gat á flíkinni en það má rimpa það saman eða hafa bara smá gat.

krummi

Satt er það og rétt, en ég vildi síður hafa gat á erminni á fína leðurjakkanum mínum ...