Mulningar
Nei, hér eru engir kexmulningar sem gera manni lífið leitt. Engin mylsna sem situr föst undir sokkunum eða í rassskorunni eftir að hafa setið í sófanum aðeins of lengi.
Allt reynist svo auðvelt. Allt er í seilingarfjarlægð.
Við borðum plómur og epli úr garðinum og smökkum á skánsku bakkelsi (sem var algjört svekkelsi).
Það er frelsun líkast að eiga ekki bíl. Ég hugsa um það á hverjum degi að ég eigi áreiðanlega aldrei eftir að moka snjó það sem eftir er ævinnar. Við hjólum með krakkana í skóla og leikskóla. Vikuinnkaupin komast fyrir í hjólavagninum sem var keyptur notaður á skid og ingenting.
Öllu góðu fylgir eitthvað slæmt. Mig minnir að það hafi ekki tekið langan tíma að fá kennitölu í Noregi. Mesta lagi eina eða tvær vikur. Annars gerast hlutirnir ekkert afskaplega hratt þar, og konan varð ekki þreytt á að gagnrýna það og vildi meina að allt gengi miklu betur fyrir sig í Svíþjóð.
Hér drýpur nefnilega smjör af hverju strái.
Í landi þar sem maður getur varla snúið sér hálfhring án þess að þurfa að gefa upp kennitöluna sína, segir það sig sjálft að kennitölulaus maður getur ekki gert margt. Maður getur ekki opnað bankareikning, maður kemst ekki inn í heimsins besta heilbrigðiskerfi, maður getur ekki orðið sér úti um símanúmer, maður fær ekki barnabætur ... maður fær ekki neitt. Þetta á sér allt sínar skýringar, en þær eiga heima í fortíðinni, með mylsnunni sem hrundi úr brókunum í síðasta mánuði.
Kennitalan er loksins komin.

0 aths:
ATHS.