Nýtt líf
Ég er fíkill. Facebook-fíkill.
Þess vegna skráði ég mig af Facebook rétt í þessu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég geri það og ég man hversu góð tilfinningin var þegar ég gerði það fyrst og ég man hversu blendin tilfinningin var þegar ég opnaði Facebook aftur. Ég fékk áfall þegar ég komst að því að það eru rúmlega 11 000 skeyti frá Facebook í innhólfinu mínu. Svo verð ég að segja að það varð mér hálfpartinn um megn hversu margt fólk þóttist geta haft skoðanir á persónu minni án þess að hafa hugmynd um hver ég er. En það er áreiðanlega bara vænisýki.
Nú ætla ég að verða mér úti um byssuleyfi og byrja að tala um tilfinningar.

7 aths:
Ég vissi að þú myndir skjóta en mér brá samt.
Hvert er annars samband byssuleyfis og tilfinningatjáningar?
úff, hvað ég er hrædd við byssur, en samt væri ég til í að skjóta nokkra akkúrat núna. Kristín í París.
Það er ekkert samband á milli þess að fá sér byssuleyfi og þess að tjá sig um tilfinningar.
Það er hins vegar samband á milli þess að loka FB og þess að tjá sig um tilfinningar.
Kristín. Sammála! Svona leið mér áður en ég skaut fyrsta skotinu. Eftir leið mér eins og Súperman.
Ég missti alveg af þessu feisbúkdrama, og kannski eins gott.
Hjálmar er líka byssukall og það vekur upp frumstæðar kenndir að sjá hann handleika vopn. Samt er mér svakalega illa við byssur. Skil þetta ekki, enda getur maður víst ekki skilið allt.
Það er nú varla hægt að kalla þetta drama (eða þú ert kannski að vísa í eitthvað sem ég veit ekki hvað er?). Fyrir mitt leyti fékk ég bara nóg. Ég hef hugsað um þetta síðan um áramót, en aldrei látið verða af því af því að mér fannst alltaf eins og ég væri að missa af einhverju.
En maður missir ekki af neinu. Nákvæmlega engu. Og ef maður er eitthvað á þörfinni er bara hægt að senda þessu fólki sem maður hefur verið að gantast við tölvupóst. Ég ætla t.d. að teikna handa ykkur engil og hjörtu núna og senda ykkur.
Nei nei, ég sá bara í kommenti hjá vini þínum Sigurbirni að þar var vísað í einhver skeyti á FB. Meira veit ég ekki um það mál. En nú ætla ég að skoða engilinn...
Ég stend á gati.
M
ATHS.