Ég er ábyggilega orðin of gömul til að læra annað mál nógu vel þannig að ég geti starfað við mitt fag. Vann í BNA og Kanada nokkur ár og hafði þokkaleg tök á ensku, en er orðin ryðguð í málinu. Gæti samt væntanlega skúrað gólf eða afgreitt í búð í Skandinavíu.
Hef verið ósátt við uppgjöf og flótta Íslendinga til annarra landa undanfarið, en vonleysið hér er yfirþyrmandi og engum hollt. Mig langar ekki að búa hérna lengur, en láttu það ekki fara lengra í bili.
4 aths:
Til lukku með það!
Vildi að ég kynni útlensku svo ég gæti flúið þetta eymdarsker og unnið við mitt fag. Rækallans óheppni að hafa valið talmeinafræði.
Takk!
Þú ert nú varla svo vitlaus að þú getir ekki lært útlensku.
Ég er ábyggilega orðin of gömul til að læra annað mál nógu vel þannig að ég geti starfað við mitt fag. Vann í BNA og Kanada nokkur ár og hafði þokkaleg tök á ensku, en er orðin ryðguð í málinu. Gæti samt væntanlega skúrað gólf eða afgreitt í búð í Skandinavíu.
Hef verið ósátt við uppgjöf og flótta Íslendinga til annarra landa undanfarið, en vonleysið hér er yfirþyrmandi og engum hollt. Mig langar ekki að búa hérna lengur, en láttu það ekki fara lengra í bili.
Til hamingju með íbúðina. Auðvitað munu fleiri en færri gefast upp á íslandi, hvílíkt rugl og svik og prettir.
ATHS.