20100228

Ítalskt sætabrauð

Maður slær ekki slöku við! Það er örugglega rétt sem kom fram í þáttum Christine Koht um fjölskylduna að barnafólk vill helst af öllu ekki fá á tilfinninguna að það hafi ekki neitt að gera, því þá sofnar það. Maður rembist eins og rjúpan við staurinn allan liðlangan daginn. Þá þarf maður heldur ekki að hugsa um allt þetta óþægilega í lífinu ...


Ég bakaði sænskar kardimommutvíbökur í gær. Ég bakaði ítalskar möndlutvíbökur (cantucci) í dag:


Úti er vor! Febrúarvor! VOR!!!

20100222

Klippt og skorið

Einn ömurlegasti dagur mánaðarins var í síðustu viku. Hvort um sig höfðum við hjónin allt á hornum okkar og fundum hvort öðru allt til foráttu. Börnin voru með æðiber í rassi, og ekki viðræðuhæf, eins og illa hirtir hundar ... Þá settumst við niður við borðstofuborðið og gerðum klippimyndir. Hér er mín:


20100207

Tvíbökur

20100206

Á kaffihúsinu (fika)

Á bókasafninu

20100124

Talið!

Systir mín (sú eldri) og ég ræddum tómstundaiðju Gústafs V Svíakonungs í símann á afmælisdegi hennar. Hún kvartaði sáran undan því að ég blogga of lítið. Hún bloggar bara um lélegt málfar, ég um gardínur. Það er ekki svo oft sett upp nýjar gardínur hérna heima að það sé í frásögur færandi. Mér sýnist samt á öllu að íslenskir blaðamenn mættu alveg vanda mál sitt betur. Þá á ég ekkert endilega við þágufallssýki, nefnifallsheilkenni, nýjar og gamlar þolmyndir, dvalarhorf og þess háttar. Það fer ekki í taugarnar á mér nema síður sé (þótt ég átti mig ekki alveg á því hvað þetta nýja dvalarhorf á að merkja, en það er annar handleggur).

Hér er smá dæmi. Ef ég væri ritstjóri DV hefði ég tekið þann sem skrifaði textann á beinið (ég á samt erftitt með að trúa því að textinn sé frumsaminn ... hvað sem því líður þá er hann arfaslæmur. Ég á hvorttveggja við innihald og málfar).

Nema hvað! Einhvern tíma fyrir fyrri heimstyrjöld fékk Gústav V magasár og læknir hans ráðlagði honum að sauma út til að róa taugarnar. Hann saumaði víst aðallega það sem kallast blixtsöm eða viggsöm á sænsku (ég hef ekki hugmynd um hvað það heitir á íslensku, en systir mín sem er ótæmandi fróðleikstunna þegar kemur að handavinnu veit það áreiðanlega). Hér er mynd:

Sagan segir að þýskættuð kona Gústavs, Viktoría, hafi nauðað í honum um að gerast bandamaður Þjóðverja í fyrri heimstyrjöldinni þar sem hann sat boginn yfir útsaumsstykkinu. Gústaf svaraði víst með ákveðinni röddu: „hjóð Viktoría, ég er að telja“. Svíþjóð hélt hlutleysi sínu, en Viktoría fór til San Michele og daðraði við Munthe.

20100117

Gardínur

Skyldi fólk vera í vafa þá er þetta gardínublogg og í morgun var hengt upp eldhúsgardínurnar:


Efnið kemur frá tendó og á eftir að taka tíma að venjast.

20100111

Í morgunkuldanum

Maður lætur ullarsokka ekki aftra sér í að viðhalda ímyndinni.


Pallíettuskórnir eru mikilvægur hluti af múnderíngunni.

20100107

Frostpinni

Ef maður fer út í 36 stiga frost með opinn munn fær maður fljótt kal á tunguna. Svo er um að gera að halda augunum opnum því annars frjósa augnlokin saman á augnhárunum. Ég ætla ekki að lýsa tilfinningunni sem maður fær ef maður er ekki almennilega klæddur neðantil.



Það er kannski bara best að halda sig innandyra.

20091229

Silunganet

Nýju stofugardínurnar eru japanskt stóris (eða silunganet ef því er að skipta).


Gleðilega rest

20091211

Húsgögn og hádegismatur

Það var keypt sér rauðar bókahillur í IKEA og ljós yfir borðstofuborðið (fyrri eigendur höfðu skilið eftir forljóta plastljósakrónu í líki minimalístísks blóms). Nú vantar bara gardínurnar og maður getur farið að spankúlera um nakinn á neðri hæðinni. Rjómagumsið með græna marsipanlokinu var bara keypt af því að það passaði við letrið á bakkanum.

20091201

Gulltré

Við erum flutt. Eina ferðina enn. Að þessu sinni innanbæjar í ysta úthverfi. Hinum megin við hraðbrautina eru akrar og ég læt mig dreyma um svínaskítsfýluna sem á eftir að gjósa upp hér með vorinu. Ef eitthvað vekur mann betur en rotþróarstækja, þá er það lyktin af nýskítadreifðum túnum.


Það er kaldara hér en niðri í bæ. Jólatréð (eitt af tveim) er komið upp.