20090924

Varúð

Nú fór keðjan af. Endanlega.


Þetta er óhuggulegt. (sjá mynd hér). En hálfóhuggulegri er þó 16. athugasemdin við þessa færslu (sjá mynd hér):
[...] Það er allavega hlustað þegar Davíð talar og verður líka lesið það sem hann skrifar.Ekki er ég hissa þó fari hrollur um suma bloggara hér margir hafa bloggað mjög oft ósanngjarnt og viðbjóðslegt um þennan mann sem nú tekur við þessu ágæta blaði og þykjir mér víst að þeir sjái þá sóma sinn í að fara annað til að blogga ef þetta er svona skelfilegt og eins er með þá sem hafa verið yfir þessu bloggi að þeir verði ekki hér yfir lengur og þá vegna þess hversu langt þeir létu fólk ganga [...]
Nákvæmlega! Er verið að lýsa eftir einhverri eftirsókarverðri ógnarstjórn, eða hef ég misskilið einhver mikilvæg skilaboð hér?

20090923

Úthverfapakk

Það borgar sig greinilega að vera þolinmóður. En stundum er það ekki nóg. Þá er gott að vera lævís.

Við erum búin að kaupa íbúð. Í úthverfi.



Á viðráðanlegu verði, mun lægra en við gerðum ráð fyrir í upphafi.

20090922

Lagst í kör

Síðustu vikur höfum við hjónin legið hálförend í flensu. Ef þetta var eitthvað annað en svínainflúensan þá hlakka ég sko ekki til að fá hana. Börnin voru veik hálfa vikuna á undan og við pössuðum okkur svo á því að vera rúmliggjandi á meðan amma Íslam var í heimsókn. Þegar hún fór lognaðist ég út af og lá í móki í nokkra daga. Dagarnir á eftir hafa svo liðið í móðu og óbærilegum hausverk. Mér leið eins og hauskúpan væri við það að klofna í tvennt.

Hausverkurinn er sem betur fer horfinn en haustið kom í staðinn. Ef haust skyldi kalla, maður myndi kannski ekki kalla það haust alls staðar ef hitinn fer niður í 15 gráður ... En trén eru byrjuð að gulna og bergflétturnar á húsunum eru orðnar eldrauðar. Það er líka haust.

Ég er að fara af límingunum út af þrenglsum. Æ, hvað lífið er mikill barningur! Og ekki skánar það við það að verða eldri.

Guð blessi Ísland.

20090914

Bjartsýni

„Við komum snart!“ hrópaði R á eftir ömmu þegar hún fór inn í öryggisleitina á Kastrup og þótt lestin tilbaka hafi verið stappfull var heldur einmanalegt hjá okkur. Þá var gott að koma heim í eplakompottið sem amma gerði í morgun úr eplunum í garðinum.


Guð blessi Ísland.

Hlíft sér við e-u

Ég fæ svo mikinn hausverk af því að skrifa eyjan.is að ég fer aldrei þangað inn.


Guð blessi Ísland.

20090913

Æðibunugangur

Við skoðum hverja íbúðina á fætur annarri og erum hálfsvekkt yfir uppblásnu verði á ljótu veggfóðri og plasthúðuðum eldhúsinnréttingum frá níunda og tíunda áratugnum. Því miður eru gæðin á milljónprógramminu (sem við sáum í dag) heldur ekki mikið til að hrópa mikið húrra fyrir.


Við skoðuðum annars næstum því glænýja íbúð í útjaðri bæjarins um daginn. Við erum ekki mikið fyrir hvíta veggi og stálinnréttingar og konunni fannst þetta allt aðeins of „íslenskt“. Henni fannst með öðrum orðum of berangurslegt. Við vorum eiginlega búin að ákveða að þetta væri ekkert fyrir okkur.

Við erum samt búin að komast að því að hún er svo fín að við erum búin að gera tilboð í hana.

Guð blessi Ísland.

20090908

Slysó


Þá hefur maður fengið að kynnast sænska heilbrigðiskerfinu og eins gott að krakkinn var kominn með kennitölu... Hún hljóp sem fætur toguðu inn í svefnherbergi, datt fram fyrir sig og fékk rúmbríkina svo kyrfilega í barkakílið að hún missti andann í tuttugu sekúndur og meðvitundina í einhverjar í viðbót. Það var hringt á sjúkrabíl í offorsi og áður en við vissum af því var íbúðin full af sjúkraliðum.

Hún var eiturhress þegar hún rankaði loksins við sér og það kjaftaði af henni hver tuska við karlana sem fengu allir að kynnast dúkku og íhníohní og svo átti pabbi að tala skánsku svo allir gætu hlegið smá...

Við fórum svo feðginin á slysó þar sem leikritið hélt áfram ... Hér er sérstök slysavarðsstofa fyrir börn þótt það þýði ekki að biðtíminn sé eitthvað styttri. Við vorum hvort um sig orðin heldur framlág þegar við fengum loksins að hitta lækni eftir rúma tveggja tíma bið.

Það heyrðist ekki múkk í henni þegar smásjánni var troðið ofan í hálsinn á henni gegn um nefið.

T var heldur svekktur yfir því að hún skyldi ekki hafa fengið neitt fyrir að hafa staðið sig svona vel. Ekki einu sinni límmiða...

Guð blessi Ísland.

20090904

Ævisaga

Ég lofaði því einhvern tíma í sumar að ég skyldi skrifa lufsu um Jan Guillou á kerlingabókabloggið. Samviskan nagar mig svo ógurlega yfir því að ég skuli ekki vera búinn að standa við loforðið að ég keypti sjálfsævisögu karluglunnar í vikunni og er byrjaður að þræla mér í gegn um hana.

Mér féllust næstum því hendur þegar ég fletti upp tíundu neðanmálsgrein (og var ekki búinn að lesa nema fimmtán síður). Þetta gæti ekki verið minna jarðbundið og frásögnin (sem er í þriðju persónu!) gæti vart verið hlutdrægnari. Ég ætla samt að nálgast ævisöguna með sama hugarfari og ævisögu Gustavs V Svíakonungs. Opnu og með fróðleiksfýsi.


Guð blessi Ísland.

20090903

Veðurfar

Nú rignir og það er góð tilbreyting. Það hefur ekki rignt svo um munar síðasta mánuð.

Svona lítur veðurspáin annars út aðra septemberviku:


Guð blessi Ísland.

20090902

Festis

Á hverjum degi kaupum við perusafa (festis) á torginu og R drekkur hann svo í hjólavagninum á leiðinni heim.


Þegar hún fékk safann í gær sagði hún: „Pabbi er snäll“ og hjartað í mér bráðnaði.

Guð blessi Ísland.

20090901

Morgunstund

Ef maður fer snemma á fætur og á dálítið erfitt með að vakna, mæli ég með því að menn stilli sér upp við bíl sem dælir upp úr rotþró. Það finnst ekkert sem getur vakið mann betur en sá daunn. Þetta gerði ég áðan á leiðinni í vinnuna og hef sjaldan verið hressari.

Við förum annars á fætur klukkan hálf sjö. R vaknar að vísu jafnan fyrir sex, en við reynum að halda henni í ró þangað til að minnsta kosti 6.15 eða 6.20. Það gengur misjafnlega því hún á það til að byrja að syngja hástöfum og vekja alla í nærliggjandi húsum með öskrum ef maður fer ekki á fætur með henni.

Svo hefst barningurinn. Hver á að fara fyrst í sturtu, hver fær að borða morgunmat, hver á að gefa börnunum morgunmat. Sjónvarpið bilað! Ekkert búmpbúmpa (Bolibompa, sænska Stundin okkar). Morguninn ónýtur ... eða þannig. Þegar klukkuna vantar fimm mínútur í átta, ryðjast allir út. R er komið fyrir í hjólavagni, og svo hjóla allir af stað í halarófu. Fyrst ég, svo R, þá T og loks konan (sem keypti sér notað hjól á slikk).

Visa Lund på en större karta

Það tekur tíu til fimmtán mínútur að hjóla í skólann, við R höldum áfram á leikskólann sem er í næstu götu. Svo hefst leitin að næstu rotþró.

Guð blessi Ísland.

20090830

Mulningar

Nei, hér eru engir kexmulningar sem gera manni lífið leitt. Engin mylsna sem situr föst undir sokkunum eða í rassskorunni eftir að hafa setið í sófanum aðeins of lengi.

Allt reynist svo auðvelt. Allt er í seilingarfjarlægð.


Við borðum plómur og epli úr garðinum og smökkum á skánsku bakkelsi (sem var algjört svekkelsi).


Það er frelsun líkast að eiga ekki bíl. Ég hugsa um það á hverjum degi að ég eigi áreiðanlega aldrei eftir að moka snjó það sem eftir er ævinnar. Við hjólum með krakkana í skóla og leikskóla. Vikuinnkaupin komast fyrir í hjólavagninum sem var keyptur notaður á skid og ingenting.

Öllu góðu fylgir eitthvað slæmt. Mig minnir að það hafi ekki tekið langan tíma að fá kennitölu í Noregi. Mesta lagi eina eða tvær vikur. Annars gerast hlutirnir ekkert afskaplega hratt þar, og konan varð ekki þreytt á að gagnrýna það og vildi meina að allt gengi miklu betur fyrir sig í Svíþjóð.

Hér drýpur nefnilega smjör af hverju strái.

Í landi þar sem maður getur varla snúið sér hálfhring án þess að þurfa að gefa upp kennitöluna sína, segir það sig sjálft að kennitölulaus maður getur ekki gert margt. Maður getur ekki opnað bankareikning, maður kemst ekki inn í heimsins besta heilbrigðiskerfi, maður getur ekki orðið sér úti um símanúmer, maður fær ekki barnabætur ... maður fær ekki neitt. Þetta á sér allt sínar skýringar, en þær eiga heima í fortíðinni, með mylsnunni sem hrundi úr brókunum í síðasta mánuði.

Kennitalan er loksins komin.


Guð blessi Ísland.

Skánar á Skáni

Nýir tímar. Nýtt líf. Nýjar umbúðir.

Skánin hvefur og innan í er mjúkt kjötið. Eins og þegar maður tekur kjarnann úr ofþroskaðri plómu.


Guð blessi Ísland.