Kvikindi
Ég nýt þess að geta bent konunni minni á að enska sé tungumál með sagnasamræmi.
Snemma var ákveðið að bólusetja gjörvallt mannkyn hérlendis gegn nýju inflúensunni eins og hún kallast hér og búið að búa til voðalegt plan fyrir hvernig það ætti að gerast. Fólki var skipt í aldurshópa og áhættuhópa. Þá voru keyptir u.þ.b. 18 milljónir skammtar af bóluefninu eða nóg til að bólusetja alla tvisvar. Svo leið og beið, en ekkert gerðist. Bóluefnið kom ekki, plönin riðluðust. Heilsugæslustöðvarnar fengu eina og eina sprautu, fólk í áhættuhópum ruddist síðan í hrönnum inn á sjúkrahúsin fyrir tveim vikum, börnin voru bólusett í skólunum þremur vikum of seint. Fyrir nokkrum dögum var ákveðið að börn á aldrinum 6 mánaða til 3 ára ætti líka að bólusetja. R verður bólusett í byrjun desember. Svolítið sænskt. Allt rosa skipulagt en svo fokkast allt upp.
Ég er kominn með sinaskeiðabólgur og stífa fingur af því að klippa og líma úr skjölum. Svo eru augun í mér orðin svo þurr að linsurnar færast upp og niður með augnlokunum og skrapa hornhimnurnar. Hausverkurinn er ógurlegur og mér er svo mikið mál að ég míg örugglega á mig ef ég stend upp. Mig klæjar í allan líkamann (konan bannar mér að byrja aftur á ataraxinu af því að þá sef ég í heila viku) og gyllinæðin sprakk áðan. Maður er svei mér þjakaður.
Það var keypt sér bíl í dag. Gamlan Audi sem kostar 800 krónur að fylla tankinn á. Hjartað sló í takt við mælinn á bensíndælunni og ég sór þess eið að það verði bara keyrt bílinn um helgar ...
Ég keypti dobíu af tinsoldátum í formi Gústavs V Svíakonungs í gær. Þetta verður jólagjöfin í ár.
Síðustu daga hefur R verið í hælaháum skóm (brúnir, stærð 36, þriggja-fjögurra sentimetra háir hælar) þegar við sækjum hana á leikskólann ... Hún var í krummafót í dag, alsæl.
R er fullviss um að Lína Langsokkur, Tommi, Anna og Herra Níels komi bráðum í heimsókn. Þau eru bara rétt ókomin. Standa fyrir utan núna.
Ég get bara svarað fyrir sjálfan mig. Konan flaug norður á bóginn í gær og mætir nú óværunni, þ.e.a.s. sínum fyrrverandi, í réttarsal vegna umgengissamnings sem hann hefur þráskallast við að samþykkja nema hin og þessi skilyrði séu uppfyllt, öll jafnfurðuleg og fjarri raunveruleikanum að það hálfa væri yfirdrifið ... en það er kannski ekki við öðru að búast frá manni sem er jafnfurðulegur og veruleikafirrtur og hann. Maður vonar bara að hann fái síðasta kjaftshöggið núna.
Um helgar sefur R úti í vagni (á leikskólanum sofa þau inni) og það getur tekið allt að klukkutíma að fá hana til þess að sofna (ef það tekst þá á annað borð). Áður en við förum út sækir hún bók og tilkynnir manni að hún ætli ekki að sofa í vagninum, bara lesa.
„É vílar det ekki!“ segir R þegar henni líkar ekki eitthvað.