20110326

Engill dagsins

20110325

Daglegt amstur

Jæja, þá er komið að því eina ferðina enn. Heimsókninni til lögfræðingsins.

Við erum nefnilega svo ótrúlega heppin að maðurinn sem kallar sig föður stjúpsonar míns á erfitt með að láta okkur í friði og enn erfiðara með að vera samvinnuþýður, sem endaði í því fyrir jól að strákurinn þvertók fyrir að fara til föður síns. Núna er allt andlega ofbeldið gleymt og strákurinn vill hitta pabba sinn, sem lætur eins og ekkert hafi gerst, aftur.

Karlpungurinn hefur ævinlega gert allt til þess að gera líf okkar að helvíti (þótt það hafi til allrar guðs lukku batnað eftir að við fluttum). Núna verður sleginn nagli í kistuna, það verður sótt um að hann missi forræði yfir barninu. Það á allt eftir að fara í háaloft með tilheyrandi hótunum og veseni. Ég veit ekki hvernig ég á að lifa þetta sumar af ef það verður eins og sumarið 2007 ...

Engill dagsins



20110324

Engill dagsins

FB

Hvaða gæðablóð er það sem tengir inn á bloggið mitt frá Facebook?

Þú mátt alveg láta það eiga sig.

20110323

Bók

Æ, hvað maður á góða að.

Þegar ég kom heim beið mín umslag í póstkassanum.

Þórdís sendi mér 90 sýni úr minni mínu eftir Halldóru K Thoroddsen. Ég ætla að lesa hana í kvöld í stað þess að hanga á FB <3

*knùz* og TAKK fyrir mig!

Að deila skrifstofu

Þangað til fyrir nokkrum vikum sátum við þrjú á skrifstofunni. Þá fékk eiginkona mín loksins eigin skrifstofu og við urðum tvö. Núna er hún sem ég deili skrifstofunni með búin að eignast barn og við erum aftur orðin þrjú á skrifstofunni.

Kallið mig karlrembu. Mér finnst í sjálfu sér allt í lagi að koma með börnin sín í vinnuna (það er reyndar ekki leyfilegt samkvæmt reglugerð háskólans hér), en mér finnst samt fulllangt gengið að mæta með ungabarn á skrifstofu sem maður deilir með öðrum.

Að kaupa köttinn í sekknum

Ég verðlaunaði mig fyrir að hætta á FB með því að kaupa mér flík á 80% afslætti.

Hún kom með póstinum í dag. Með þjófavörn í ... hvílíkur bömmer!

Engill dagsins

20110322

Engill dagsins

Frelsi

Það sem er gott við að hafa slökkt á FB er frelsið. Að finnast maður ekki þurfa að fylgjast með öllu þessu fólki.

Bloggið er fínt. Hér er maður út af fyrir sig, það tekur stuttan tíma (nema þegar maður sekkur sér í einhverjar langlokur) og maður getur hvílt sig á því án þess að finna óþægindatilfinninguna hellast yfir sig.

Börnin eru sofnuð svo ég ætla að horfa á eitthvað fallegt, t.d. Paris, je taime, eða ekki.

Glaumgosar

Ég tók þessa mynd af vetrargosa hér fyrir utan húsið í fyrra.

Ári og tveim dögum síðar, lítur vetrargosinn svona út (þetta er reyndar ekki sama planta, svo ykkur er velkomið að kæra mig).


Nýtt líf

Ég er fíkill. Facebook-fíkill.

Þess vegna skráði ég mig af Facebook rétt í þessu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég geri það og ég man hversu góð tilfinningin var þegar ég gerði það fyrst og ég man hversu blendin tilfinningin var þegar ég opnaði Facebook aftur. Ég fékk áfall þegar ég komst að því að það eru rúmlega 11 000 skeyti frá Facebook í innhólfinu mínu. Svo verð ég að segja að það varð mér hálfpartinn um megn hversu margt fólk þóttist geta haft skoðanir á persónu minni án þess að hafa hugmynd um hver ég er. En það er áreiðanlega bara vænisýki.

Nú ætla ég að verða mér úti um byssuleyfi og byrja að tala um tilfinningar.