20100624

Útsprungin

Hrútspunginn? Nei, úsprungin. Rósin er útsprungin! Á Jónsmessu.


Sólblómin eiga nú hug minn allan og ég eyði öllum kvöldum í það að binda þau upp upp á nýtt svo þræðirnir skerist ekki í blöðin og stilkana. Konan kvartar sáran yfir því að það séu aldrei teknar myndir af henni. Hún þarf að lauma sér inn á þær í staðinn.

Stímað

Stímaður silfurþráður (tvöfaldur)


20100622

Miðsumarmorgunn

Sólblóm og bergsóley. Nágrannarnir (hinum megin við skjólvegginn) eru líka með bergsóley sem blómstaði í síðustu viku, blómin eru risastór og fjólublá og þekja næstum því allan vegginn. Mín á að blómstra rauðum blómum.



Hvítu þræðirnir eru húsgarn sem ég batt sólblómin upp með þegar ég kom heim úr ferðalagi um daginn. Konan hafði glápt á það aðgerðalaus þegar blómin brotnuðu næstum því í slagveðursrigningu.

Klifurrósarknúppar. Ég fæ gæsahúð af tilhugsuninni um að þetta eigi eftir að opna sig einhvern tíma. Ég vona bara svo innilega að það gerist á Jónsmessu. Það væri svo fallegt.


Blómstrandi morgunfrú. Þessi er hálfræfilsleg greyið. Ég bjóst við risastórum blómum og að hún væri aðeins lágvaxnari, svona eins og morgunfrúrnar sem mamma var með í garðinum fyrir norðan í den. Þessar ná mér upp á hné og blómin eru varla stærri en fingurbjörg ...

20100604

Hiti

Síðustu dagar hafa verið erfiðir. Ég hef næstum því ekki getað gengið og nú er komið í ljós að ég þarf að fara í uppskurð. Þegar ég var táningur hafnaði stýrið á hjólinu mínu á kafi í klofinu á mér og það hefur hvað eftir annað byrjað að gera mér lífið leitt. Það verður þá guðsblessunarlega meira pláss í brókunum.

Er ekki dásamlegt að geta setið úti langt fram á kvöld, spjallað, hlegið, drukkið? Sumarið léttir lundina, og vermir sálina. Mig svíður í kinnarnar.

20100519

Sumar

Eftir langt kuldakast kom loksins sumarveður í gær og vonandi helst það eitthvað. Mann er virkilega farið að lengja eftir hlýindum.


Garðurinn dafnar þrátt fyrir kulda og regn síðustu vikur. Við fengum lánað handsláttuvélina nágrannans í gær og T sló grasið í fyrsta sinn. Það tók ekki langan tíma.

Ég get varla beðið eftir því að morgunfrúrnar byrji að blómstra. Ég sé allavega ekki eftir að hafa hent þeim út svona snemma. Þær eru þéttar og stinnar í stilknum.

Rósmarín og salvía hlið við hlið í leirpotti.

R felur sig á bak við sýrenu. Klifurrósin lifði það af að ég klippti hana í mars.

20100429

Gardínublogg verður garðyrkjublogg

Aldeilis munur að geta sprangað um í netabolnum og speedo-skýlunni án þess að krókna úr kulda alla tíð!

[...]

Við T sáðum sólblómafræjum í byrjun apríl og þau spretta eins og illgresi. Þetta urðu u.þ.b. þrjátíu plöntur. Ég henti öllum nema tólf. Þau verða náttúrlega svo stór, sólblómin og garðurinn er svo lítill að það er ekki pláss fyrir meira.

Við keyptum svo stunguspaða og mold um daginn og í gær gróf ég loksins fyrir beði úti undir húsvegg. Ég fékk aðsvif þegar ég stakk spaðanum í gegn um grasþökuna og lenti á hálfgerðum sementsalla úr sandi og möl ... ekki nema von að aumingjans grasið sé með blettaskalla!

Sólblómin dafna nú í beðinu. Hér er mynd (kústurinn í horninu er Lavandula augustifolia):



(Mig hefur alltaf dreymt um að skrifa svona garðyrkju-/innanhússhönnunarblogg. Hér er önnur mynd sem sýnir hversu natinn ég er við uppstillingarnar):




Myndin sýnir klifurrósina (og eitthvert illgresi sem ég kann ekki deili á undir), morgunfrúrnar í zinkbalanum (mjög fansí) og rósmarínið mitt og salvíuna! Þetta er svo fallegt að ég tárast!

Draumar mínir rætast einn af öðrum.

20100417

HFF

Við R eigum flugmiða frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur. Á morgun. Við ætluðum að vera í viku. Konan og T eiga flugmiða á þriðjudaginn kemur ...


HFF! HFF! HFF! HFF! HFF!

Við erum búin að hlakka svo til ... ætluðum að leggjast í sundlaugarnar, borða páskaegg hjá ömmu íslam, og síðast en ekki síst ... fagna Hrafni sem fermist á sumardaginn fyrsta!

Eins gott að maður á smá hass að hugga sig með!

20100411

Gluggatjöld úr útsöluefni





20100410

Kláði

Útbrot og ofsakláði eru tvö orð sem lýsa lífi mínu vel. Ég hef reynt að taka ýmis ofnæmislyf en fæ sjálfsmorðshugsanir af þeim öllum.


Svo benti læknirinn, nágranni minn, mér á enn eitt ofnæmislyf, ólíkt hinum af því að maður verður ekki þreyttur af því. Það kostar náttúrlega hvítuna úr augunum og eftir þrjár pillur er ég kominn með allar hugsanlegar aukaverkanir .... sénsinn að ég nenni að taka fleiri ...

20100331

Vangaveltur

Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju fólk lætur alltaf rönguna á gardínunum snúa út.


20100324

Máltíð

Þetta kallar maður mat!



20100318

Vetrargosi

Þá veit maður að vorið er komið þegar maður sér fyrsta vetrargosann stinga upp stránum. Hann og hóffífilinn sem er reyndar öllu ljótari.




Það er þoka. Vorþoka.

20100306

Á göngu