Nýtt líf
Ég er fíkill. Facebook-fíkill.
Þess vegna skráði ég mig af Facebook rétt í þessu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég geri það og ég man hversu góð tilfinningin var þegar ég gerði það fyrst og ég man hversu blendin tilfinningin var þegar ég opnaði Facebook aftur. Ég fékk áfall þegar ég komst að því að það eru rúmlega 11 000 skeyti frá Facebook í innhólfinu mínu. Svo verð ég að segja að það varð mér hálfpartinn um megn hversu margt fólk þóttist geta haft skoðanir á persónu minni án þess að hafa hugmynd um hver ég er. En það er áreiðanlega bara vænisýki.
Nú ætla ég að verða mér úti um byssuleyfi og byrja að tala um tilfinningar.
















